A A A
« Maí »
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Atburđir

14. febrúar 2012 - Ingvar Örn Ákason

5.flokkur yngri

Myndin er frá fyrsta móti strákanna sem var fyrir jól í ÍR-heimilinu.
Myndin er frá fyrsta móti strákanna sem var fyrir jól í ÍR-heimilinu.
Strákarnir í 5.flokki yngri fóru í skemmtilega ferð suður til Reykjavíkur um síðustu helgi. Haldið var suður með flugi á föstudegi og svo haldið heim á leið beint eftir síðasta leikinn á laugardeginum. Þeir voru 13 talsins með í ferðinni og einungis þrír leikir í boði í íþróttahúsi Hagaskóla. Þjálfarinn þurfti því að rúlla vel á leikmönnum til að allir fengju sitt hlutverk innan liðsins í leikjunum. 

Úrslit leikjanna:

Hörður-Stjarnan2=11-16
Hörður-ÍR5=21-8
Hörður-ÍR3=13-14

Mikil stemmning var í hópnum og leikgleðin mikil. Mörkum var fagnað og þeir sem voru á bekknum hvöttu þá sem voru inná til dáða. Mikið var lagt uppúr því að sem flestir kæmust á blað og það náðu ansi margir drengir að skora mark á mótinu sem var gaman að sjá. Annar fararstjóra hópsins, Anton Helgi, bróðir Elíasar Ara fyrirliða, sá um að halda fjörinu gangandi á spýtunni. Mórallinn var góður og það var gaman að fylgjast með gleðinni sem skein úr andlitum drengjanna. Andri markmaður fékk þó leiðindahögg á puttann í lok annars leiksins. Hann tölti í átt að bekknum og kallaði: Byssi, ég held ég sé brotinn. Og þá stóð litli puttinn útí loftið og greinilegt að puttinn var brotinn eða í það minnsta kominn úr lið. Hann lét þetta þó ekkert á sig fá og spurði hvenær næsti leikur yrði og hvort hann myndi nokkuð missa af Akureyrarmótinu sem er í apríl. Mamma hans fór með hann uppá slysó og þar kom í ljós að hann er frá í 4-6 vikur með flott brot í vaxtabeini.

Andri ætti að vera klár fyrir ferðina í apríl til Akureyrar en strákarnir eru allir farnir að hlakka til þeirrar ferðar þó að nokkuð langt sé enn í að það ferðalag eigi sér stað. 

Handboltalega vantaði örlítið uppá liðið svona til að byrja með amk í fyrsta leik og kannski erfitt að gíra sig upp í svona örstutt mót. En vonandi fáum við fleiri leiki á næsta móti og strákarnir klárir frá fyrstu mínútu í fyrsta leik. Þá mun fátt stöðva þessa kátu snillinga.

Áfram Hörður! 

Skrifađu athugasemd:


Vefir ađildarfélaga HSV

Vefumsjón