Þann 1.okt sl. hætti Kristján Kristjánsson sem framkvæmdarstjóri HSV. Á síðasta fundi stjórnar var Kristjáni þökkuð góð störf fyrir sambandið og honum óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Stjórn fól formanni að uppfæra rekstraráætlun fyrir HSV og verður ákvörðun um ráðningu nýs framkvæmdarstjóra tekin í framhaldinu. Þangað til mun Jón Páll Hreinsson, formaður HSV gegna störfum framkvæmdarstjóra í nánu samvinnu við stjórn og yfirþjálfara Íþróttaskóla.

Nánari upplýsingar veitir Jón Páll í s.8994311 eða hsv@hsv.is.

  Nánar

 

Héraðssamband Vestfirðinga auglýsir eftir umsóknum í styrktarsjóð þjálfara. Samkvæmt reglugerð sjóðsins er honum ætlað að auka þekkingu og færni þjálfara og með því móti auka gæði þjálfunar og efla íþróttastarf í sveitarfélaginu.  Sjóðsstjórn er heimilt að úthluta styrkjum til aðila utan vébanda HSV, enda muni viðkomandi verkefni verða íþróttalífi og félögum í Ísafjarðarbæ til hagsbóta.

 

Umsóknarfrestur er til 15. október 2012
 

Vakin er sérstök áhersla á reglugerð sjóðssins sem finna má á heimasíðu HSV www.hsv.is . Þar undir „Um HSV“ .  Þar koma fram frekari upplýsingar varðandi umsóknarferlið. 

 

 

Frekari upplýsingar og spurninga um þjálfarasjóðinn sendist í tölvupósti: hsv@hsv.is

Nánar

Héraðssamband Vestfirðinga auglýsir eftir umsóknum í afreksmannasjóð sambandsins. Geta allir íþróttamenn sótt um styrk í sjóðinn svo framlega sem þeir séu aðilar innan HSV og uppfylli þau skilyrði sem eru í 7.grein laga afreksmannasjóðsins.

 

7. gr.

Stjórn sjóðsins getur veitt styrk ef viðkomandi uppfyllir eitthvert eftirtalinna skilyrða:

Ef hann keppir á eða hefur möguleika á þátttöku á Ólympíu-, Heims-, Evrópu- eða

Norðurlandameistaramótum.

Ef hann er valinn í landslið eða úrtök fyrir landslið. Ef hann er framarlega í íþróttagrein

sinni á landsvísu eða hefur sýnt mjög góðan árangur og er líklegur til að komast í hóp

bestu íþróttamanna landsins í íþróttagrein sinni. Skal þá miðað við styrkleikaflokkun

sérsambanda (sé hún til).

Lið eða hópur geta fengið úthlutað ef þau eru framarlega í íþróttagrein sinni á landsvísu

eða hafa sýnt mjög góðan árangur og eru líkleg til að komast í hóp bestu liða/hópa

 

Hægt er að sjá reglugerð sjóðsins inn á heimasíðu HSV.  

 

Umsóknarfrestur er til  15. október 2012

 

Frekari upplýsingar og spurningar varðandi afreksíþróttasjóðinn sendist í tölvupóst: hsv@hsv.is

Nánar
Umsóknarfrestur til að sækja um styrki úr Fræðslu- og verkefnasjóði Ungmennafélags Íslands er til 1. október.  Umsóknum skal skilað rafrænt á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem er að finna á heimasíðu UMFÍ(www.umfi .is) undir Framlög og styrkir fyrir 1. október.  Sjóðurinn veitir m.a. styrki til félags- og íþróttastarfs ungmennafélagshreyfingarinnar með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi.  Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags eða sambands til að afla sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem gæti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmennafélagshreyfinngunni í heild. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðnum. Sjóðsstjórn er heimilt að veita styrki úr sjóðnum að eigin frumkvæði til verkefna sem ekki teljast til árlega verkefna hreyfingarinnar. Nánari upplýsingar eru gefnar á þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568-2929.
Nánar

Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði sem starfar samkvæmt íþróttalögum nr. 64/1998, sbr. reglugerð nr. 803/2008. Veita má framlög til eftirfarandi verkefna á sviði íþrótta:

  1. Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana.
  2. Útbreiðslu- og fræðsluverkefna.
  3. Íþróttarannsókna.
  4. Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga.

  • Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi.
  • Eyðublöð má finna á https://minarsidur.stjr.is.
  • Sækja þarf um aðgang að umsóknavef ráðuneytisins. Aðgengi er einungis gefið á kennitölur og er lykilorð sent til viðkomandi á netfang sem gefið er upp við nýskráningu.
  • Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar.
  • Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja mennta- og menningarmálaráðuneytið undir flipanum Umsóknir. Þar er umsóknareyðublað fyrir íþróttasjóð. Svæði merkt rauðri stjörnu verður að fylla út. Umsækjendur geta fylgst með afgreiðslu umsókna sinna með því að skrá sig inn á umsóknavefinn.

Umsóknarfrestur er til  1. október 2012.

Nánar