Íþróttaskóli HSV mun hefjast fimmtudaginn 1.september.  Íþróttaskólinn er samvinnuverkefni HSV, aðildafélaga HSV og Ísafjarðarbæjar.  Íþróttaskólinn er ætlaður börnum í 1-4. bekk í grunnskólum Ísafjarðarbæjar og geta öll börn á þessum aldri skráð sig í skólann og tekið þátt.  Íþróttaskóli HSV mun leggja áherslu á grunnþjálfun barna ásamt því að þau fái þjálfun í flestum þeim íþróttagreinum sem í boði eru á eldri stigum aðildarfélaga HSV.  Á haustmisseri er skólanum skipt upp í þrjá hluta þ.e. grunnþjálfun, boltaskóla og sund.   

Í grunnþjálfun er áhersla lögð á hreyfingu og hreyfiþroska barna.  Fjölbreyttar æfingar verða í boð, farið í leiki, þrautir, fimleika, hopp, hlaup, köst og margt fleira.  Grunnþjálfun er í boði tvisvar í viku.

Boltaskóli:  Í boltaskólanum verða boltagreinum skipt upp í tímabil og þjálfuð ein grein í einu.  Boltagreinarnar í skólanum eru knattspyrna, blak, körfuknattleikur og handknattleikur.   Geta börnin því fengið að kynnast öllum þessum greinum, æft hverja grein og náð góðum tökum á hverri grein.  Boltaskóli er í boði tvisvar í viku.

Sund:  Í íþróttaskólanum verður almenn sundþjálfun í boði og verða æfingar tvisvar í viku.

Ráðinn hefur verið yfirþjálfari íþróttaskólans sem er Kristján Flosason.  Kristján Flosason er íþróttafræðingur að mennt og hefur áralanga reynslu af þjálfun barna og unglinga.  Yfirþjálfari sér um alla skipulagningu íþróttaskólans í samvinnu við aðildarfélög HSV.  Yfirþjálfari íþróttaskóla HSV mun sjá um alla grunnþjálfun og boltaskóla fyrir börn í 1-2. bekk.  Sundþjálfari verður Margrét Eyjólfsdóttir en hún hefur þjálfað börn fyrir sundfélagið Vestra í mörg ár og hefur náð frábærum árangri í starfi sínu.  Þjálfarar í boltaskóla fyrir 3-4. bekk verða fengnir frá aðildafélögum sem koma með sérþekkingu á sinni grein og kafa dýpra í hverja boltagrein.  HSV er mjög ánægt með að hafa jafn hæfa og reynslumikla þjálfara í íþróttaskólanum í vetur.

Verð á haustönn verður 7000 kr fyrir önnina hvort sem valið er allir eða einn hluti íþróttaskólans.

Skráning í íþróttaskólann mun fara fram í gegnum sérstakt skráningarkerfi sem verður aðgengilegt á heimasíðu HSV.  Frekari fréttir af því mun koma inn fljótlega.

Markmið íþróttaskóla HSV er:

  • Fá sem allra flest börn til að iðka íþróttir
  • Að fyrstu kynni barna af íþróttaiðkun sé jákvæð
  • Að börn fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum
  • Að auka gæði þjálfunar
  • Lækka kostnað heimila við íþróttaiðkun barna
  • Auka grunnþjálfunarhluta æfinga, almenna hreyfingu, hreyfiþroska og hreyfigetu 

Á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri verður íþróttaskólinn unnin í samvinnu við íþróttafélögin á hverjum stað og eru frekari fréttir að vænta á allra næstu dögum.

Nánar
Þeir iðkendur sem ætla að fara á ULM á Egilsstöðum eiga að skrá sig sjálfir á heimasíðu mótsins www.ulm.is og greiða þar einnig.  Ekki á að leggja inn á HSV. Nánar

Auglýst er eftir yfirþjálfar í íþróttaskóla HSV

Héraðssamband Vestfirðinga óskar eftir því að ráða metnaðarfullan og drífandi aðila í starf yfirþjálfara íþróttaskóla HSV.  Íþróttaskóli HSV sér um alla þjálfun barna í 1-4. bekk í Ísafjarðarbæ í samvinnu við aðildarfélög HSV.  Í íþróttaskóla HSV verður lögð áhersla á grunnþjálfun iðkenda ásamt því að þau fá þjálfun í flestum þeim íþróttagreinum sem í boði eru á eldri stigum hjá aðildafélögum HSV. Um er að ræða 75% starf.

Starfssvið

·         Ábyrgð á þjálfun og skipulagningu íþróttaskóla HSV

·         Skipuleggja grunnþjálfunarhluta skólans

·         Skipuleggur í samstarfi við þjálfara aðildarfélaga þjálfun í öðrum greinum

·         Skipuleggur starf kynningagreina í íþróttaskólanum

·         Sér um samskipti við foreldra iðkenda

·         Sér um samskipti við þjálfara aðildarfélaga

·         Skipuleggur í samstarfi við aðildarfélög íþróttamót og aðra viðburði

Menntunar – og hæfniskröfum

·         Háskólamenntun á sviði íþrótta æskileg

·         Mikil reynsla af þjálfun yngri barna æskileg

·         Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum

·         Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

·         Stundvísi

·         Hreint sakavottorð

Umsóknarfrestur er til 7.ágúst og þarf einstaklingurinn að geta hafið störf 15.ágúst.  Frekari upplýsingar fást hjá framkvæmdarstjóra HSV í netfang hsv@hsv.is og í síma 450-8450.

Nánar

Í haust þegar skólaár hefst mun Héraðssamband Vestfirðinga (HSV) í samstarfi við aðildarfélög sín setja á legg íþróttaskóla HSV fyrir börn í 1-4 bekk grunnskóla Ísafjarðarbæjar.  Íþróttaskóli HSV mun leggja áherslu á grunnþjálfun barna ásamt því að þau fái þjálfun í flestum þeim íþróttagreinum sem í boði eru á eldri stigum aðildarfélaga HSV.  Ráðinn verður yfirþjálfari sem sér um skipulagningu ásamt því að sjá um grunnþjálfun.  Hann mun einnig skipuleggja og þjálfa aðrar greinar í samstarfi við aðildarfélög HSV.   HSV og aðildarfélög hafa unnið að þessu verkefni í langan tíma og hefur sú vinna nú borið árangur.  Ísafjarðarbær styður verkefnið og var stofnun skólans ein af grunnstoðum í nýjum samningi Ísafjarðarbæjar og HSV sem undirritaður var síðastliðin vetur. 

Markmið skólans eru.

·         Fá sem allra flest börn til að iðka íþróttir

·         Að fyrstu kynni barna af íþróttaiðkun sé jákvæð

·         Að börn fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum

·         Að auka gæði þjálfunar

·         Lækka kostnað heimila við íþróttaiðkun barna

·         Auka grunnþjálfunarhluta æfinga, almenna hreyfingu, hreyfiþroska og hreyfigetu.

Nánar

Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina. Ungmenna og íþróttasamband Austurlands er mótshaldari og stefnt er að því að halda glæsilegt mót við góðar aðstæður.

 Unglingalandsmótin eru vímuefnalaus íþrótta- og fjölskylduhátíð og frábær kostur fyrir alla þá sem velja heilbrigt og vímuefnalaust umhverfi samhliða því að taka þátt í fjölbreyttri íþróttakeppni.


Allir á aldrinum 11 – 18 ára geta tekið þátt í íþróttakeppni á Unglingalandsmótinu. Keppendur greiða eitt mótsgjald, kr. 6.000.- og fá með því þátttökurétt í öllum keppnisgreinum.

Glæsileg íþróttamannvirki eru til staðar á Egilsstöðum en Landsmót UMFÍ var haldið þar árið 2001 og töluverð uppbygging varð í kringum það mót.   Íþróttaleikvangurinn er vel staðsettur í hjarta bæjarins.  Sundlaug og íþróttahús er þar rétt við hliðina og  öll önnur íþróttamannvirki í næsta nágrenni.

Tjaldstæði keppenda verður afskaplega vel staðsett og í göngufæri við keppnissvæðin.

 

Samhliða íþróttakeppninni verður fjölbreytt skemmtidagskrá í boði fyrir alla fjölskylduna á daginn. Þar má nefna að skemmtidagskrá verður í Tjarnargarðinum alla daga.  Sprelligosa- og Fjörkálfaklúbbar, leiktæki fyrir born og unglinga og  gönguferðir með leiðsögn alla daga fyrir þá sem eldri eru. Þá verða fjölbreyttar kvöldvökur og síðan flugeldasýning á sunnudagskvöldið eins og venja er.

 Opnað hefur verið fyrir skráningar á mótið og skrá keppendur sig sjálfir inn og greiða í gegnun heimasíðu mótsins www.ulm.is .

Allar frekari upplýsingar gefur framkvæmdarstjóri HSV í netfang hsv@hsv.is og síma 450-8450  Nánar