Héraðssamband Vestfirðinga auglýsir eftir umsóknum í Styrktarsjóð þjálfara. Samkvæmt reglugerð sjóðsins er honum ætlað að auka þekkingu og færni þjálfara og með því móti auka gæði þjálfunar og efla íþróttastarf í sveitarfélaginu. Sjóðsstjórn er heimilt að úthluta styrkjum til aðila utan vébanda HSV, enda muni viðkomandi verkefni verða íþróttalífi og félögum í Ísafjarðarbæ og Súðavík til hagsbóta.

Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember

Í umsókn þarf að koma fram helstu upplýsingar um þjálfarann og/eða verkefnið sem sótt er um styrk fyrir. Umsóknum skal skilað á netfangið hsv@hsv.is eða til HSV, Suðurgötu 12, 400 Ísafjörður

Reglugerð sjóðsins má finna á heimasíðu HSV; https://www.hsv.is/um_hsv/reglur_styrktarsjods_thjalfara_hsv/ 

Frekari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri HSV, hsv@hsv.is eða í síma 663-3311