Reglugerð búnaðarsjóðs HSV

1. Grein

Búnaðarsjóður Héraðssambands Vestfirðinga er sjóður til að styrkja kaup á nauðsynlegum búnaði fyrir íþróttafélög HSV. Styrkveitingum er ætlað að auka gæði þjálfunar og efla íþróttastarf í sveitarfélaginu.

2. Grein

Framlög til sjóðsins eru samkvæmt 5.grein laga HSV.

3. Grein

Umsækjendur skulu vera aðildarfélög HSV.

4. Grein

Stjórn HSV heldur utan um úthlutanir úr sjóðnum. 
Hlutverk stjórnar er að úthluta fé úr sjóðnum og fylgjast með nýtingu styrkja.

5. Grein

Í umsóknum skal tilgreina:

  1. Heiti félags.
  2. Tilgreina þann búnað sem félagið hyggst fjárfesta í.
  3. Upphæð sem sótt er um.
  4. Hvernig mun nýr búnaður auka gæði þjálfunar.
  5. Annað er þurfa þykir.

 

6. Grein

Stjórn HSV auglýsir styrki tvisvar sinnum á ári mars og október.

7. Grein

Stjórn HSV metur hverja umsókn til samþykktar eða synjunar. Verði umsókn samþykkt til styrkveitingar skal ákveða hversu háan styrk viðkomandi verkefni hlýtur.

Umsækjanda skal sent rökstutt svar við umsókninni.

Styrkur er greiddur út gegn framvísun reiknings.

8. Grein

Reglugerð þessi tekur gildi þegar Formannafundur HSV  hefur staðfest hana og gildir þar til ársþing HSV ákveður annað.

 

Ísafjörður 17. janúar 2023

Upplýsingar
  • Skrifstofa

    Suðurgata 12, 400 Ísafirði

  • Sími