Reglur um skiptingu styrkja til aðildarfélaga innan HSV
1. grein – Um úthlutun styrkja
HSV sér um að dreifa styrkjum til aðildarfélaga skv. innsendum ársskýrslum. Styrkir þessir eru bein fjárframlög frá bæjarfélagi, Lottógreiðslur og greiðslur frá Íslenskum getraunum.
2. grein – Skipting styrkja til aðildarfélaga
Styrkir skulu skipast á milli aðildarfélaga skv. eftirfarandi reiknireglu:
- 70 % miðast við fjölda iðkenda, yngri en 18 ára
- 20 % miðast við fjölda iðkenda 18 ára og eldri
- 5 % miðast við skráða félaga
- 5 % er skipt jafnt á félög
3. grein – Skilyrði fyrir úthlutun
Uppfylla þarf eftirfarandi skilyrði til að félag geti fengið úthlutað styrkjum:
- Hverju aðildarfélagi innan HSV er skylt að skila starfsskýrslu eigi síðar en 15. apríl ár hvert. Starfsskýrslur skulu innihalda félagatal, iðkendatal og ársreikninga. Í starfsskýrslum skal aðgreina meistaraflokka frá barna- og unglingastarfi.
- Aðildarfélög skuli skila ársskýrslum til sambandsins að loknum aðalfundum sínum eða eigi síðar en 31. maí. Ársskýrslur skulu innihalda skýrslu stjórnar með árituðum ársreikningi.
- Verði vanhöld á skýrsluskilum er HSV heimilt að halda eftir styrkjum til viðkomandi félags. Geri viðkomandi félag ekki skil á ársskýrslum á réttum tíma tvö ár í röð hefur stjórn HSV heimild til að taka viðkomandi félag af úthlutunarlista. Það fjármagn sem þegar hefur safnast upp skal renna 30% til afreksmannasjóðs HSV og 70% í búnaðarsjóð HSV.
4. grein - Breyting á reglum
Reglum þessum verður einungis breytt á ársþingi HSV með 2/3 hluta greiddra atkvæða.
Þannig samþykkt á Héraðsþingi HSV á Þingeyri 28. maí 2026.
Upplýsingar
-
Skrifstofa
400 Ísafirði
-
Tölvupóstur
hsv@hsv.is
-
Sími
