Nú er opið fyrir umsóknir í Afrekssjóð HSV og Þjálfarasjóð HSV.
Við hvetjum íþróttafólk og þjálfara innan aðildarfélaga HSV til að kynna sér sjóðina og þau tækifæri til stuðnings sem þar eru í boði.
Afrekssjóður HSV
Afrekssjóður HSV er ætlaður til að styðja við íþróttafólk innan aðildarfélaga HSV sem hefur náð góðum árangri í sinni íþrótt og stefnir að frekari afrekum. Hægt er að sækja um árssamning við sjóðinn eða styrk til íþróttafólks sem ekki fellur undir skilyrði árssamnings. Umsóknir eru rafrænar og skal skila þeim á hsv.is/umsokn.
Reglur Afrekssjóðs HSV: hsv.is/um_hsv/afrekssjodur_hsv
Þjálfarasjóður HSV
Þjálfarasjóður HSV er ætlaður til að styðja við menntun og uppbyggingu þjálfara innan aðildarfélaga HSV. Umsóknir í Þjálfarasjóð, ásamt viðeigandi upplýsingum og fylgigögnum samkvæmt reglum sjóðsins, skal senda á umsokn@hsv.is.
Reglur Þjálfarasjóðs HSV: hsv.is/um_hsv/styrktarsjodur_thjalfara_hsv
Umsóknarfrestur í báða sjóði er til og með 10. desember 2026.
Hægt er að fá aðstoð við gerð umsóknar hjá svæðisfulltrúa íþróttahreyfingarinnar á Vestfjörðum (siu.is/vestfirdir) og hvetjum við umsækjendur til að nýta sér þá aðstoð eftir þörfum. Næst verður auglýst eftir umsóknum í Búnaðarsjóð HSV vorið 2027.
Við hvetjum öll sem telja sig eiga erindi í sjóðina til að kynna sér reglurnar og sækja um.
