Í stuttu máli gengur leikurinn út á það að klífa ákveðin fjöll og stimpla í passa með stimplum sem eru að finna á fjöllunum. Því næst er passanum skilað inn og verða nöfn heppinna göngugarpa dregin út að leik loknum. Þær gönguleiðir sem eru í Fjallapassanum í ár eru Naustahvilft, Fossavatn, Buná í Tungudal, Þjófaskarð, Valagil og Mýrafell. Eiga þátttakendur að fara að minnsta kosti 4 af þessum 6 gönguleiðum áður en þeir skila passanum sínum inn. Leikurinn stendur til 10. september og eru vegleg verðlaun í boði fyrir heppna þátttakendur.
Eins og áður er það grasrótarsamtökin Heilsuefling í Ísafjarðarbæ sem stendur fyrir leiknum og nú í samstarfi við Héraðssamband Vestfirðinga.
Allar nánari upplýsingar um leikreglur, hvar hægt er að nálgast passana, verðlaun og fleira er að finna á heimasíðu leiksins www.fjallapassinn.is