Vanda Sigurgeirsdóttir
Vanda Sigurgeirsdóttir

Framundan  eru þrír fræðslufyrirlestrar fyrir iðkendur, þjálfara, foreldra og stjórnarmenn aðildarfélaga HSV. Það er Vanda Sigurgeirsdóttir sem heimsækir Ísafjörð og ræðir um ýmsa þætti sem styrkir börn og unglinga í þeirra íþróttastarfi og miðlar til aðila sem að því starfi koma.

Vanda er með meistaragráðu í uppeldis- og menntunarfræði og leggur nú stund á doktorsnám þar sem viðfangsefnið er einelti. Hún starfar sem lektor í tómstunda- og félagsmálafræði við menntavísindasvið Háskóla Íslands og er fyrrum landsliðskona í knattspyrnu. Hún hefur áratuga reynslu af að vinna með börnum og foreldrum. Forvarnir eineltis eru henni hjartans mál og hefur hún haldið fræðsluerindi fyrir börn og foreldra víða um land. Sérsvið hennar við Háskólann er einelti og tómstunda- og leiðtogafræði. Þá hefur hún einnig starfað sem knattspyrnuþjálfari í um 30 ár. 

Dagskrá:

Miðvikudagur 16. ágúst

Kl. 17.00 - 19.00: þjálfarar og stjórnarmenn

                            Staðsetning: stofa 17 í Menntaskólanum á Ísafirði

Fyrirlestur fyrir þjálfara og stjórnarfólk um samskipti við iðkendur, um börn í félagslegum vanda og hvernig þjálfarar geta haldið börnum í íþróttum, um að mismuna ekki börnum, um félagslega þáttinn og fleira.

 

Kl. 20.00 - 21.30: Foreldrar

                            Staðsetning: stofa 17 í Menntaskólanum á Ísafirði

Fyrirlestur fyrir foreldra íþróttakrakka um jákvæða og neikvæða leiðtoga - og hvernig

foreldrar geta hjálpað börnum sínum að verða jákvæðir leiðtogar.

 

Fimmtudagur 17. ágúst

Kl. 16.00 - 17.30: iðkendur fædd 2005 og fyrr.

                            Staðsetning stofa 17 í Menntaskólanum á Ísafirði                     

Fyrirlestur fyrir iðkendur um sálrænan undirbúning. Farið verður yfir nokkrar leiðir til að

kenna krökkunum að vinna í andlega þættinum. Einnig rætt um leiðtoga.

 

Kl. 18.00-19.30:   Knattspyrnuþjálfarar

                            Staðsetning: Torfnes

Fræðsla fyrir knattspyrnuþjálfara sérstaklegta miðuð við þjálfun stelpna.