Vekjum athygli á stefnumótunarfundi ÍSÍ&UMFÍ í Menntaskólanum á Ísafirði á laugardaginn nk:
 
Áfram heldur vinna við stefnumótun hreyfingarinnar. Nú er fundað með fólki, fulltrúum íþróttahéraða, félögum og öðrum áhugasömum á Vestfjörðum.
 
Nú er komið að því að taka næsta skref í vinnunni og fá stærri hópa til að koma að þessum fyrsta hluta í vinnunni, taka þátt í að skilgreina hlutverkið og ákveða markmiðin. Til að tryggja aðkomu sem flestra að ferlinu höfum við stillt upp fundum um allt land. Jafnframt verður boðið uppá fundi á Teams fyrir þau sem ekki geta tekið þátt í staðfundum.
 
Meðfylgjandi er hlekkur til að skrá sig á fund:
 
Það er mikils virði og gerir alla vinnuna skilvirkari þegar raddir flestra heyrist og ólík sjónarmið eru lögð á borðið. Við vonumst til að sjá sem allra flest á fundinum í Menntaskólanum á Ísafirði.
 
Nánari upplýsingar: