ÁSgerður Þorleifsdóttir formaður HSV, Marinó Hákonarson Hendingu, Finnur Magnússon GÍ og Kubba, Guðrún Ásbjörg Stefánsdóttir GÍ, Reynir Pétursson GÍ, Heimir Hansson SFÍ. Á myndina vantar Jón Hálfdán Pétursson
ÁSgerður Þorleifsdóttir formaður HSV, Marinó Hákonarson Hendingu, Finnur Magnússon GÍ og Kubba, Guðrún Ásbjörg Stefánsdóttir GÍ, Reynir Pétursson GÍ, Heimir Hansson SFÍ. Á myndina vantar Jón Hálfdán Pétursson
1 af 2

Ásgerður Þorleifsdóttir nýlega heiðraði sex einstaklinga fyrir þeirra framlag til íþróttastarfs á svæðinu. Fór heiðrunin fram á ársþingi HSV. Fjórir hlutu silfurmerki HSV og tveir gullmerki HSV. Ef ekki væri fyrir framlag þessa fólks og fjölda annara sem vinnur þrotlaust starf í sjálfboðavinnu þá væri íþróttastarf ekki jafn blómlegt hér í bænum og nú er. Það er erfitt að fullþakka slíkt framlag en með þessu vill HSV minna á hlutirnir gerast ekki að sjálfu sér, það er alltaf sjálboðaliði bak við tjöldin.

Þau sem hlutu silfurmerki HSV eru:

Guðrún Ásbjörg Stefánsdóttir 

Guðrún (Gósí) hefur unnið fyrir Golfklúbb Ísafjarðar um árabil. Hafa þau hjón hún og Tryggvi unnið samhliða að öllu starfi hjá klúbbnum. Guðrún hefur starfað í ýmsum nefndum fyrir klúbbinn meðal annars í mótanefnd og hefur þannig með ötulum hætti stuðlað að framgangi Golfklúbbsins hvort heldur er hvað varðar mótahald, rekstur golfskálans svo ekki sé talað um alla afkomendur þeirra hjóna.

Reynir Pétursson

Reynir er einn af máttarstólpum Golfklúbbs Ísafjarðar.  Eftir að hann fór á eftirlaun má segja að hann hafi mætt upp á hvern einasta dag til að vinna í á vellinum og nánast hægt að ganga að honum öll sumur við vinnu á vellinum.  Reyni er mjög umhugað um ræktun vallarins og lætur sitt ekki eftir liggja í þeim málum. Hann hefur einnig lagt ómælda vinnu í púttvöllinn á Torfnesi og fáir sinnt honum jafnvel og Reynir. Að auki má nefna að Reynir er góð fyrirmynd fyrir íbúa hvað varðar heilsueflingu en Reyni má gjarnan sjá á heilsubótagöngu víðsvegar í kring um bæinn.

Jón Hálfdán Pétursson

Jón Hálfdán hóf ungur iðkun knattspyrnu hjá BÍ88 og hélt því áfram upp alla yngri flokkana og alla leið upp í meistaraflokk. Þegar leikmannsferlinum lauk hóf hann nám í íþróttafræðum og fljótlega varð ljóst að knattspyrnuþjálfun vakti talsverðan áhuga hjá honum. Hann hóf því að þjálfa yngri flokka og telst nú hafa þakið allt sviðið: hann hefur þjálfað svo til alla flokka BÍ88 og Vestra, frá fjögurra ára krökkum allt upp í meistaraflokk þar sem hann var um tíma aðalþjálfari en hefur auk þess verið aðstoðarþjálfari og liðsstjóri. Þá hefur hann verið stjórnarmaður í meistaraflokksráði um leið og hann hefur tekið að sér hin ýmsu trúnaðarstörf fyrir félagið.

Vandfundinn er jafn skilvirkur og áhugasamur liðsmaður og Jón Hálfdán. Það er skoðun okkar sem til þekkja að án krafta hans og elju væri staða deildarinnar talsvert önnur og lakari. 

Heimir Hansson

Heimir hefur stundað skíðagöngu frá unga aldri og keppt fyrir hönd Skíðafélagsins bæði á unglingameistaramótum, Skíðamótum Íslands sem og almenningsgöngum um víða veröld. Hann hefur einnig starfað sem þjálfari hjá SFÍ og sat í göngunefnd um árabil þar til að hann lét af störfum í fyrra. Heimir er einnig lykilaðili í mótahald í skíðagöngu á Ísafirði og hefur verið í mótanefnd SFÍ og komið að skipulagningu nær allra þeirra skíðagöngumóta sem haldin hafa verið hér s.l. áratug. Einnig er hann stjórnarmaður í Fossavatnsgöngunni og átt stóran þátt í velgengni hennar. Heimir er þó ekki bara sjálfboðaliði heldur hefur hann einnig keppt í öðrum íþróttum s.s. hlaupum, sundi og þríþraut.

 

Gullmerki HSV fengu:

Finnur Magnússon  

Finnur Magnússon hefur starfað í Golfklúbbi Ísafjarðar í nokkra áratugi, en aldrei meira en eftir hann komst á eftirlaunaaldur fyrir nokkrum árum síðan. Finnur sat einnig um tíma í stjórn HSV

Hann hefur séð um rekstur Golfskálans í einu og öllu, bæði hvað varðar veitingasölu og þrif og umsjón.  Er hans vinna þar ómetanleg fyrir klúbbinn. Auk þess hefur hann verið ötull verkmaður á öllum vinnukvöldum klúbbsins.  Finnur hefur einnig ásamt Reyni Pétursyni séð um hirðingu púttvallarins sem er staðsettur á Torfnesssvæðinu og er mikið notaður af eldri borgurum. Finnur er enn að, er varaformaður Kubba íþróttafélags eldri borgara og er mjög virkur í þeirra starfi bæði sem iðkandi og sjálfboðaliði. HSV þakkar hér með Finni öll hans góðu störf og  hvetur til áframhaldandi starfs fyrir íþróttahreyfinguna í Ísafjarðarbæ.

 

Marinó Hákonarson

Marinó hefur unnið dyggilega fyrir íþróttahreyfinguna á Ísafirði um áratuga skeið og er enn að. Hann var lengi í stjórn ÍBÍ þar af sem formaður síðust ár bandalagsins. Marinó var einnig formaður undirbúningsnefndar um stofnun HSV.

Þegar gluggað er í fundargerðir HSV í gegnum tíðina sést nafn Marinós að ég tel oftar en nokkuð annað; Marinó Hákonarson þingforseti, Marinó fundarstjóri, Marinó leggur áherslu á, Marinó telur, Marinó ítrekar, Marinó kallaður til ráðgjafar. Nói er þekktur fyrir að hann vill halda í hefðir og hafa formfestu á hlutunum og þó það hafi á köflum tekið á þá hefur það jafnframt veitt gott aðhald og tryggt góða starfshætti stjórnar.

Marinó er nú formaður Hestamannafélagsins Hendingar og hefur verið um langa hríð. Hefur hann ötullega barist fyrir hönd félagsins að fá bætta aðstoðu sem félagið missti við gerð Bolungarvíkurganga. Nú hefur sú deild loksins verið leyst og hefur reiðhöll nú sprottið upp í Engidal að milku leiti í sjálfboðavinnu Marinós og félaga í Hendingu. HSV þakkar Marinó öll hans góðu störf og hlakkar til áframhaldandi samstarfs.