1 af 2

Á ársþingi HSV sem haldið var 11. maí síðastliðin voru sex einstaklingum veittar heiðursviðurkenningar HSV.  Þjú gullmerki og þrettán silfurmerki voru veitt einstaklingum sem að hafa unnið ötult starf í þágu íþróttahreyfingarinnar

Eftirfarandi fengu viðurkenningar.

 

Silfurmerki HSV 2022:

 

Jenný Hólmsteinsdóttir

Jenný hefur komið að yngri flokka starfi knattspyrnunnar í mörg ár. Jenný hefur setið í stjórn, haldið utan um fjáraflanir, tekið að sér störf tengiliða og svo lengi mætti telja. Jenný hefur unnið ötult starf í þágu knattspyrnunnar með góðum árangri. Jenný hefur nú yfirgefið stjórn félagsins og vill stjórn nýta tækifærið og þakka henni kærlega fyrir það góða starf sem hún hefur unnið.

 

Salome Elín Ingólfsdóttir

Salome hefur starfað sem sjálfboðaliði innan knattspyrnunnar í mörg ár. Hefur tekið þátt í hinum ýmsu verkefnum og sinnt þeim af kostgæfni. Hún hefur til margra ára sinnt starfi tengiliða innan félagsins og er því vel kunnug hinum ýmsu verkefnum. Það er ómetanlegt að hafa öfluga sjálfboðaliða innan  hreyfingarinnar og er Salome einstaklega gott dæmi um einn slíkan.

 

Elísabet Samúelsdóttir

Elísabet eða Bubba eins og við þekkjum hana flest, hefur starfað sem sjálfboðaliði innan knattspyrnunnar í mörg ár. Hefur tekið þátt í hinum ýmsu verkefnum og sinnt þeim af kostgæfni. Hún hefur til margra ára sinnt starfi tengiliða innan félagsins og er því vel kunnug hinum ýmsu verkefnum. Það er ómetanlegt að hafa öfluga sjálfboðaliða innan  hreyfingarinnar og er Bubba einstaklega gott dæmi um einn slíkan.

 

Hafþór Halldórsson

Hafþór eða Haffi er mörgum kunnugur. Haffi hefur verið í sjálfboðaliðastörfum innan knattspyrnuhreyfingarinnar í fjölda mörg ár og má segja að Haffi hafi gengið í öll möguleg störf. Haffi er vissulega fluttur af svæðinu, en við fáum ennþá að njóta krafta hans þar sem hann situr ennþá í stjórn meistaraflokks knattspyrnudeildar.

 

Atli Freyr Rúnarsson

Atli hefur starfað innan knattspyrnunnar til margra ára. Atli er frábær liðsmaður sem hefur fylgt félaginu lengi. Hann hefur lengi vel helgað sig að kvennaknattspyrnu á svæðinu og eigum við honum mikið að þakka.

 

Júlíus Ólafsson

Júlíus eða Júlli hefur setið í stjórn meistaraflokks til margra ára. Júlli hefur sinnt ótal mörgum sjálfboðaliðastörfum innan félagsins og gengið í hin ýmsu verk, það er alltaf hægt að treysta á að Júlli komi til aðstoðar. Hann hefur lagt sitt að mörkum til knattspyrnu á svæðinu.

 

Aníta Ólafsdóttir

Aníta hefur verið gjaldkeri yngri flokka knattspyrnudeildar Vestra til margra ára og hefur staðið sig með eindæmum vel. Aníta hefur haldið vel utan um sín verkefni og unnið að þeim fagmannlega og ötullega. Einnig hefur hún, til fjölda ára, haldið utan um búningakaup fyrir yngri flokka. Aníta hefur verið, og er enn, mikilvægur hlekkur í stjórn yngri flokka. Hún er hafsjór af upplýsingum og fróðleik sem hefur nýst félaginu vel. Sjálfboðaliðastarf Anítu í þágu knattspyrnunnar er ómetanlegt. Aníta er vel að silfurmerkinu komin, við þökkum henni innilega fyrir hennar góðu og vel unnu störf og vonumst til að fá að njóta krafta hennar áfram.

 

Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Guðný má segja er einn helsti stuðningsmaður íþróttahreyfingarinnar á svæðinu. Guðný hefur unnið frábært starf í þágu knattspyrnunnar, bæði þegar kemur að yngri flokkum og meistaraflokk. Guðný hefur starfað sem tengiliður til margra ára, haldið utan um fjáraflanir, tekið þátt í hinum ýmsu verkefnum og skipulagningu og líklega gengið í flest öll sjálfboðaliðastörf innan hreyfingarinnar. Fólk eins og Guðný er algjörlega ómetanlegt innan íþróttahreyfingarinnar og er hún vel að silfurmerkinu komin.

 

Samúel Samúelsson

Samúel eða Sammi er einn af þeim sem við tengjum strax við knattspyrnu. Hann hefur unnið ötult starf í þágu knattspyrnunnar á svæðinu í mörg ár og er hvergi nærri hættur. Sammi hefur verið formaður meistaraflokksráðs til margra ára og hefur með óeigingjörnu starfi sínu og eljusemi unnið algjört þrekvirki við að koma knattspyrnunni á þann stað sem hún er í dag, með dyggum stuðningi annarra aðila. Það er knattspyrnunni á svæðinu mikilvægt að hafa mann eins og Samma með í för, hann gefst ekki upp á því að vinna að uppbyggingu íþróttarinnar á svæðinu. Hann hleypur í hin ýmsu störf innan hreyfingarinnar og lætur fátt stoppa sig. Sammi er vel að gullmerkinu kominn.

 

Ingi Björn Guðnason

Kkd. Vestra tilnefnir Inga Björn Guðnason til silfurmerkis. Ingi Björn lét nýverið af störfum úr stjórn kkd. Vestra eftir hátt í 10 ára starf. Ingi var einn af máttarstólpum deildarinnar allan þann tíma sem hann var hluti af stjórn KFÍ og síðar kkd. Vestra. 

 

Árni Heiðar Ívarsson og Erna Sigrún Jónsdóttir

Árni Heiðar Ívarsson og Erna Sigrún Jónsdóttir Þau heiðurshjón hljóta silfurmerki HSV fyrir einstakt framlag til íþróttaiðkunnar bara í Ísajfarðarbæ en þau hafa haldið úti íþróttaskóla barnanna á hverjum laugardegi yfir vetrartímann í um það bil 20 ár og hefur íþróttaskólinn verið fastur punktur í lífi margra ísfirskra bara. HSV þakkar þeim af heilum hug fyrir þeirra einstaka framlag og óeigingjarna starf í þágu ísfiskra barna.

 

Einar Ágúst Yngvason

Einar var afar efnilegur alpagreinamaður á unglingsárum, en
skipti þá yfir í skíðagöngu þar sem hann átti farsælan feril. Hann var á
sínum tíma í hópi fremstu skíðagöngumanna landsins og vann m.a.
Íslandsmeistaratitla, en að keppnisferlinum loknum hélt hann áfram að sinna
íþróttinni af miklum áhuga og þrótti. Hann hefur m.a. setið í stjórn
Fossavatnsgöngunnar og var formaður Trimmnefndar Skíðasambands Íslands um
árabil.  Þá hefur hann sinnt mótahaldi hér heimafyrir af krafti og verið
mótsstjóri, eða í öðrum störfum, á fleiri mótum en hægt er að telja.  Þær
skipta líka örugglega mörgum hundruðum, klukkustundirnar sem hann hefur
unnið í sjálfboðavinnu við að byggja upp og bæta aðstöðu skíðagöngufólks á
Seljalandsdal.

Einar hefur líka haldið áfram að vera virkur þátttakandi í hinum ýmsu
íþróttum, svo sem þríþraut, hlaupum og auðvitað skíðagöngu. Hann var í hópi
þeirra fyrstu sem luku Landvætta þrautinni, sem samanstendur af hlaupi,
hjólreiðum, sundi og skíðagöngu, og árið 2008 varð hann fyrstur Íslendinga
til að hljóta nafnbótina Worldloppet Gold Master, en þann titil er hægt að
vinna í gegnum alþjóðlega mótaröð í skíðagöngu.

Í gegnum tíðina hefur Einar oft aðstoðað við þjálfun barna og unglinga hjá
Skíðafélagi Ísfirðinga, en undanfarin ár hefur hans aðals merki þó verið
fullorðinskennsla.  Hann hefur því hjálpað bæði ungum og öldnum að rata í
réttu sporin, og þannig stuðlað að áframhaldandi uppbyggingu og eflingu
íþróttarinnar bæði hér heima og á landsvísu.

 

Gullmerki HSV 2022:

 

Hildur Elísabet Pétursdóttir

Hildur hefur starfað fyrir knattspyrnuhreyfinguna í fjölda ára. Hún hefur gengið í nánast öll störf innan hreyfingarinnar og sinnt þeim vel og örugglega. Störf Hildar hafa verið ómetanleg fyrir knattspyrnuna á svæðinu. Hildur hefur verið okkur flestum mikil fyrirmynd með hennar störfum og er góð fyrirmynd annarra foreldra þegar kemur að störfum í þágu félagsins.

 

Jón Hálfdán Pétursson

Jón Hálfdán, eða Nonni eins og við þekkjum hann flest, hefur starfað innan knattspyrnuhreyfingarinnar í tugi ára. Hann hefur starfað sem yfirþjálfari yngri flokka sem og þjálfari hjá meistaraflokk í fjölda mörg ár og sinnt störfum sínum vel. Nonni hefur verið óþreytandi í störfum sínum og alltaf tilbúinn að taka að sér þau verkefni sem hann er fenginn í. Hann hefur tekið að sér óteljandi störf sjálfboðaliða innan knattspyrnunnar og má stundum sjá hann á vellinum frá morgni til kvölds svo dögum skiptir. Nonni skipar stóran sess í knattspyrnuhreyfingunni og á hreyfingin honum mikið að þakka.

 

Ingólfur Þorleifsson

KKD. Vestra tilnefnir Ingólf Þorleifsson til gullmerkis. Ingólfur lét nýverið af störfum sem formaður kkd. Vestra og hefur hann verið viðloðandi körfuboltastarfið til 30 ára hjá KFÍ og svo síðar Vestra, flest þeirra sem formaður deildanna. Á körfuknattleiksdeildin honum mikið að þakka.