Í dag er gönguferð á vegum Gönguhóps erðafélagis Ísfirðinga klukkan 18. Lagt er af stað frá Grænagarði og stefnt að því að ganga inn í Tungudal og njóta haustlitanna þar. Á morgun miðvikudag er einnig gönguferð kl. 18 en þá er lagt af stað frá kirkjunni. Siðna rekur hver viðburður annan en í heild er dagskrá miðvikudagsins á þennan veg:
- Kl. 18.00 Göngutúr frá kirkjunni kl. 18.00 á vegum Gönguhóps Ferðafélags Ísfirðinga
- Kl. 18.30 Sjósund með sjósundfélaginu Bleikjunum. Synt af stað frá aðstöðu Sæfara í
Neðstakaupstað - Kl. 19.00 Á vegum Sundfélagsins Vestra mun Páll Janus Þórðarson íþóttafræðingur og sundþjálfari
veita ráðleggingar og punkta varðandi sund í Sundhöll Ísafjarðar - Kl. 20.00 Kraftlyftingafélagið Víkingur með opna æfingu í lyftingaraðstöðu í Vallarhúsi
Allir velkomnir - enginn kostnaður.