Í haust þegar skólaár hefst mun Héraðssamband Vestfirðinga (HSV) í samstarfi við aðildarfélög sín setja á legg íþróttaskóla HSV fyrir börn í 1-4 bekk grunnskóla Ísafjarðarbæjar. Íþróttaskóli HSV mun leggja áherslu á grunnþjálfun barna ásamt því að þau fái þjálfun í flestum þeim íþróttagreinum sem í boði eru á eldri stigum aðildarfélaga HSV. Ráðinn verður yfirþjálfari sem sér um skipulagningu ásamt því að sjá um grunnþjálfun. Hann mun einnig skipuleggja og þjálfa aðrar greinar í samstarfi við aðildarfélög HSV. HSV og aðildarfélög hafa unnið að þessu verkefni í langan tíma og hefur sú vinna nú borið árangur. Ísafjarðarbær styður verkefnið og var stofnun skólans ein af grunnstoðum í nýjum samningi Ísafjarðarbæjar og HSV sem undirritaður var síðastliðin vetur.
Markmið skólans eru.
· Fá sem allra flest börn til að iðka íþróttir
· Að fyrstu kynni barna af íþróttaiðkun sé jákvæð
· Að börn fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum
· Að auka gæði þjálfunar
· Lækka kostnað heimila við íþróttaiðkun barna
· Auka grunnþjálfunarhluta æfinga, almenna hreyfingu, hreyfiþroska og hreyfigetu.