Íþróttaskóli HSV mun hefjast föstudaginn 23.ágúst. Íþróttaskólinn er samvinnuverkefni HSV, aðildafélaga HSV og Ísafjarðarbæjar. Íþróttaskólinn er ætlaður börnum í 1-4. bekk í grunnskólum Ísafjarðarbæjar og geta öll börn á þessum aldri skráð sig í skólann og tekið þátt. Íþróttaskóli HSV leggur áherslu á grunnþjálfun barna ásamt því að þau fái þjálfun í flestum þeim íþróttagreinum sem í boði eru á eldri stigum aðildarfélaga HSV. Á haustmisseri er skólanum skipt upp í þrjá hluta þ.e. grunnþjálfun, boltaskóla og sund. Þegar skíðasvæðin opna verður svig- og gönguskíðaæfingum bætt við stundaskrána.
Grunnþjálfun: Í grunnþjálfun er áhersla lögð á hreyfingu og hreyfiþroska barna. Fjölbreyttar æfingar verða í boði, farið í leiki, þrautir, fimleika, hopp, hlaup, köst, aðrar greinar kynntar og margt fleira. Grunnþjálfun er í boði tvisvar í viku.
Boltaskóli: Í boltaskólanum verður boltagreinum skipt upp í tímabil og þjálfuð ein grein í einu. Boltagreinarnar í skólanum eru knattspyrna, blak, körfuknattleikur og handknattleikur. Geta börnin því fengið að kynnast öllum þessum greinum og æft hverja grein. Boltaskóli er í boði tvisvar í viku og verður fyrsta tímabilið knattspyrna. Þjálfarar í boltaskóla fyrir 3.-4. bekk verða fengnir frá aðildafélögum sem koma með sérþekkingu á sinni grein og kafa dýpra í hverja boltagrein.
Sund: Í íþróttaskólanum verður almenn sundþjálfun í boði og verða æfingar tvisvar í viku undir stjórn þjálfara Vestra.
Skíði: Í íþróttaskólanum verður boðið uppá æfingar á svig- og gönguskíðum. Æfingarnar verða undir stjórn þjálfara Skíðafélags Ísfirðinga og munu æfingatímar skýrarst frekar þegar skíðasvæðin opna í vetur.
Yfirþjálfari íþróttaskólans er Salome Elín Ingólfsdóttir. Salome sér um grunnþjálfun barna í 1.-4.bekk og einnig um þjálfun í boltaskóla fyrir börn í 1.-2. bekk.
Skráning í íþróttaskólann fer fram í gegnum sérstakt skráningarkerfi sem er aðgengilegt á heimasíðu íþróttaskóla HSV og er nú þegar hægt að ganga frá skráningu. Mjög mikilvægt er að skrá barnið í gegnum kerfið þar sem allar upplýsingar til foreldra varðandi íþróttaskólann eru sendar í gegnum þetta kerfi í tölvupósti. Góðar skráningaleiðbeiningar hafa verið settar á heimasíðu HSV.
Markmið íþróttaskóla HSV er:
- Fá sem allra flest börn til að iðka íþróttir
- Að fyrstu kynni barna af íþróttaiðkun sé jákvæð
- Að börn fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum
- Að auka gæði þjálfunar
- Lækka kostnað heimila við íþróttaiðkun barna
- Auka grunnþjálfunarhluta æfinga, almenna hreyfingu, hreyfiþroska og hreyfigetu