Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur útnefnt Íþróttamann Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2014. Það var Kristín Þorsteinsdóttir sundkona frá íþróttafélaginu Ívari sem hreppti hnossið. Þetta er annað árið í röð sem Kristín hlýtur þessa útnefningu. Kristín náði mjög góðum árangri á síðasta ári, Vann til að mynda 7 gull á Íslandsmótum og var á árinu sekúndubrotum frá því að slá heimsmetið í 50 metra skriðsundi í hennar flokki. Heimsmetið er 36,07 sekúndur en Kristín synti á 36,46 sekúndum, einungis 39 sekúndubrotum frá heimsmetinu. Kristín er mjög einbeittur og samviskusamur íþróttamaður og verður spennandi að fylgjast með afrekum hennar á árinu.