Pétur Georg er með B.A. próf í guðfræði ásamt því að vera í meistaranámi í opinberri stjórnsýslu við HÍ.
Pétur hefur mikla reynslu og áhuga á íþróttum, en þekktastur er hann eflaust þessa dagana fyrir að vera fyrirliði meistaraflokks BÍ/Bolungarvíkur í knattspyrnu.
Pétur Georg hefur alla þá eiginleika sem stjórn óskaði eftir í nýjum framkvæmdastjóra og býð ég hann velkominn til starfa, en hann mun hefja störf 1. febrúar nk. Pétur Georg starfar sem umsjónarkennari í Súðavík og mun hann sinna kennslu samhliða störfum sem framkvæmdastjóri fram á vor.
Frekari upplýsingar gefur undirritaður,
Jón Páll Hreinsson
Formaður HSV