Sigfús Fossdal úr Kraftlyftingafélaginu Víkingi varð um helgina bikarmeistari í kraftlyftingum en mótið fór fram á Akureyri.
Sigfús varð bikarmeistari annað árið í röð, lyfti samtals einu tonni og 18 kílóum betur. Hann setti Íslandsmet í bekkpressu þegar hann lyfti 333 kílóum.
Stigahæsta liðið varð KFA, sem jafnframt sá um alla framkvæmd mótsins.
Úrslit mótsins má sjá hér: http://results.kraft.is/meet/bikarmot-i-kraftlyftingum-2014