Starfsskýrsluskil þurfa að innihalda upplýsingar um félagsmenn og iðkendur á síðasta starfsskýrslutímabili, þ.e. fyrir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2025, ásamt innslegnum lykilupplýsingum úr ársreikningum fyrir síðasta starfsár (2025) og upplýsingum um núverandi stjórn og starfsfólk. Einnig þarf að skila ársreikningi undirrituðum af stjórn og skoðunarmönnum á pdf-formi og núgildandi lögum á pdf- formi inn í kerfið.
Skila þarf skýrslum fyrir 15. apríl næstkomandi. Slóð á skilakerfi ÍSÍ & UMFÍ: https://www.abler.io/isi-reports/login
Við skil á starfsskýrslum í skilakerfi ÍSÍ og UMFÍ síðastliðin ár hafa ýmsar fyrirspurnir og athugasemdir komið fram, en á þessari síðu eru talin fram helstu atriði sem talið er rétt að skerpa á til útskýringar:
https://www.umfi.is/utgafa/frettasafn/allar-frettir/ertu-ad-skila-starfsskyrslu/
