Stjórnarmönnum í HSV og HSB, ásamt stjórnum aðildarfélaga, er boðið til fundar um stefnumótun íþróttahéraða á Vestfjörðum þriðjudaginn 24. mars kl. 19 í Vestrahúsinu. 
 
Markmið fundarins er að efla samstarf, samræma sýn og leggja grunn að öflugri og sjálfbærri þróun íþróttastarfs á Vestfjörðum. Mikilvægt er að það komi amk 1 frá hverju aðildarfélagi, en því fleiri því betra.
 
Sjá nánar dagskrá á meðfylgjandi mynd.