Stjórn Héraðssambands Vestfjarða (HSV) auglýsir eftir framkvæmdastjóra.
HSV er með starfssvæði í Ísafjarðarbæ og Súðavíkurhreppi og hefur 18 virk aðildarfélög innan sinna vébanda. Sambandið vinnur náið með sveitarfélögunum tveimur að uppbyggingu íþróttamála á svæðinu ásamt því að vinna með aðildarfélögum að framgangi einstakra íþróttagreina.
Framkvæmdastjóri er starfsmaður stjórnar HSV og ber ábyrgð á daglegum rekstri ásamt samskiptum við sveitarfélög, aðildarfélög og aðra hagsmunaaðila innan íþróttahreyfingarinnar.
Helstu verkefni:
- Umsjón með rekstri HSV ásamt áætlunargerð.
- Eftirfylgni með framkvæmd Íþróttaskóla HSV.
- Samskipti við Ísafjarðarbæ og eftirfylgni með framkvæmd samninga við bæjarfélagið.
- Samskipti við aðildarfélög HSV.
- Samskipti við UMFÍ, ÍSÍ og sérsambönd.
- Samskipti við stjórn HSV.
Starfsmaðurinn sem við erum að leita að þarf:
- Háskólagráðu sem nýtist í starfi.
- Reynslu af rekstri.
- Að elska íþróttir.
- Að vera skipulagður.
- Að geta komið fyrir sig orði í ræðu og riti.
- Að vera jákvæður og með ríka þjónustulund.
- Að vera tölvufær og geta unnið í helstu skrifstofuforritum ásamt því að hafa grunnþekkingu í að vinna með heimasíður.
Með umsókn skulu eftirfarandi gögn fylgja:
- Afrit af prófskírteinum.
- Meðmæli eða umsagnir um fyrri störf umsækjanda.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst.
Stjórn HSV áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Umsóknir skulu berast á netfangið hsv@hsv.is eða í pósthólf 90 - 400 Ísafjörður.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí.
Allar upplýsingar gefur Pétur G. Markan í síma 698- 4842 og 450- 8450 og Guðný Stefanía Stefánsdóttir, formaður HSV, í síma 861 - 1072.