Umsóknarfrestur til að sækja um styrki úr Fræðslu- og verkefnasjóði Ungmennafélags Íslands er til 1. október. Umsóknum skal skilað rafrænt á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem er að finna á heimasíðu UMFÍ(www.umfi .is) undir Framlög og styrkir fyrir 1. október. Sjóðurinn veitir m.a. styrki til félags- og íþróttastarfs ungmennafélagshreyfingarinnar með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi. Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags eða sambands til að afla sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem gæti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmennafélagshreyfinngunni í heild. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðnum. Sjóðsstjórn er heimilt að veita styrki úr sjóðnum að eigin frumkvæði til verkefna sem ekki teljast til árlega verkefna hreyfingarinnar. Nánari upplýsingar eru gefnar á þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568-2929.
Leita
Fylgstu með á Facebook
Félög
- Golfklúbbur Ísafjarðar
- Golfklúbburinn Gláma
- Hestamannafélagið Hending
- Hestamannafélagið Stormur
- Íþróttafélagið Grettir
- Íþróttafélagið Höfrungur
- Íþróttafélagið Ívar
- Íþróttafélagið Stefnir
- Knattspyrnufélagið Hörður
- Skíðafélag Ísfirðinga
- Skotíþróttafélag Ísafjarðar
- Sæfari
- Ungmennafélagið Geisli
- Íþróttafélagið Vestri
- Kubbi, íþróttafélag eldriborgara í Ísafjarðarbæ
- Klifurfélag Vestfjarða