Héraðssamband Vestfirðinga auglýsir eftir umsóknum í styrktarsjóð þjálfara. Samkvæmt reglugerð sjóðsins er honum ætlað að auka þekkingu og færni þjálfara og með því móti auka gæði þjálfunar og efla íþróttastarf í sveitarfélaginu. Sjóðsstjórn er heimilt að úthluta styrkjum til aðila utan vébanda HSV, enda muni viðkomandi verkefni verða íþróttalífi og félögum í Ísafjarðarbæ til hagsbóta.
Umsóknarfrestur er til 9. nóvember 2015
Í umsókn þarf að koma fram helstu upplýsingar um þjálfarann og verkefnið sem sótt er um styrk fyrir. Umsóknum skal skilað á netfangið hsv@hsv.is eða til HSV, Suðurgötu 12, 400 Ísafjörður
Vakin er sérstök áhersla á reglugerð sjóðssins sem finna má á heimasíðu HSV www.hsv.is.
Ef einhverjar spurningar vakna þá má hafa samband við Sigríði Láru Gunnlaugsdóttur, framkvæmdastjóra HSV, í síma 863-8886.