Unglingalandsmót UMFÍ fer að þessu sinni fram í Þorlákshöfn 2.-5. ágúst. Skráning hófst 1. júlí og stendur út mánuðinn.  Öll ungmenni á aldrinum 11 - 18 ára geta skráð sig til leiks. 

 HSV langar til að fjölga þátttakendum úr sínum röðum og mæta með öflugan hóp þátttakenda á mótið í Þorlákshöfn. Sambandið mun greiða helming þátttökugjald sinna iðkenda og mun það gerast sjálfkrafa við skráningu þegar HSV er valið efst á skráningarsíðunni. Einnig er stefnt að því að vera með á svæðinu samkomutjald, bekki, borð og murikkupönnu til afnota fyrir þátttakendur HSV og fjölskyldur þeirra.

Einnig hefur verið stofnaður facebook hópur: HSV á unglingalandsmót Þorlákshöfn. https://www.facebook.com/groups/281162465953880/

 Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátið sem haldin er árlega um verslunarmannahelgina. Árið 2018 verður mótið haldið í Þorlákshöfn. Þar eru allar aðstæður til fyrimyndar, glæsileg íþróttamannvirki og frábær aðstaða fyrir mótsgesti.

Unglingalandsmót eru sannkölluð fjölskylduhátíð. Boðið er uppá fjölda keppnisgreina fyrir 11-18 ára börn og ungmenni. Margt er í boðið fyrir börn og fullorðna frá morgni til kvölds.

Á dagskránni eru helstu greinar, knattspyrna, körfubolti og frjálsar. En margar nýjungar eru líka kynntar til leiks í Þorlákshöfn. Á meðal nýrra greina nú er keppni í dorgveiði og sandkastalagerð. Keppni í kökuskreytingum er líka á dagskránni. 

Þétt dagskrá er alla mótsdagana og skemmtun á kvöldin þar sem margt af þekktasta tónlistarfólki landsins kemur fram. Þegar hafa boðað komu sína Jói Pé og Króli, Herra Hnetusmjör og Flóni, Jón Jónsson og hljómsveitin Between Mountains, Young Karin, Míó Tríó, DJ Dóra Júlía og fleiri. Hin landsþekkta Lúðrasveit Þorlákshafnar kemur svo að sjálfsögðu fram á mótinu.

Skráning fer fram á heimasíðu mótsins og þar fást ennfremur frekari upplýsingar um mótið: https://www.ulm.is/