Uppskeruhátíð Boltafélags Ísafjarðar var haldin laugardaginn 11. október sl. í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Var mæting afskaplega góð eða vel á þriðja hundrað manns sem fylgdust með verðlaunaafhendingu fyrir liðið keppnistímabil auk þess sem gestir gæddu sér á ljúffengu kaffibrauði sem foreldrar í fótboltahreyfingunni buðu hverjir öðrum.
Myndir frá tímabilinu voru sýndar á stóru tjaldi hússins og vöktu hrifningu og kátínu viðstaddra enda er einbeitingin ekki alltaf fögur. Formaðurinn hélt stutta tölu um liðið fótboltaár við mikla hrifningu enda var hljóðkerfið eitthvað klikkað svo að hann hljómaði eins og niðursoðin teiknimyndafígúra. Var stjórnendum félagsins efst í huga þakklæti til krakkanna og foreldra þeirra fyrir það frábæra starf sem þau hafa unnið, krakkarnir við æfingar og keppni og foreldrarnir við undirbúning og aðstoð við rekstur félagsins og framkvæmd á öllum þeim verkum sem þarf að vinna hjá stóru félagi.
Og starfið þetta árið var viðamikið. 2., 4., 5. og 6. flokkur drengja og 2., 3. og 4. flokkur stúlkna tóku þátt í Íslandsmótum KSÍ og voru þar allir flokkar nema 6. flokkur drengja að spila í deildakeppni, þ.e. spilaðir eru heima- og útileikir með tilheyrandi ferðalögum og tilkostnaði. 4., 5., 6. og 7. flokkur stúlkna tóku síðan þátt í Pæjumóti á Siglufirði á meðan strákarnir kepptu á Króksmóti á Sauðárkróki og Sparisjóðsmótinu í Borgarnesi þar sem stelpurnar voru margar hverjar með í för og gáfu strákunum ekkert eftir. Það er því erfitt verk hjá þjálfurunum að velja þá sem skara framúr á hverju tímabili en þá eru veitt verðlaun fyrir prúðmennsku, ástundun og framfarir í hverjum flokki fyrir sig.
Verðlaunahafar voru þessir:
3. flokkur karla:
Prúðmennska: Þorgeir Jónsson
Ástundun: Emil Pálsson
Framfarir: Axel Sveinsson
3. flokkur kvenna:
Ástundun: Klara Dís Gunnarsdóttir
Framfarir: Margrét Regína Grétarsdóttir
Prúðmennska: Ásdís Rún Ólafsdóttir
4. flokkur karla:
Prúðmennska: Bjarni Maron Magnússon
Ástundun: Hinrik Elís Jónsson
Framfarir: Andrés Hjörvar Sigurðsson
4. flokkur kvenna:
Prúðmennska: Hildur Hálfdánardóttir
Ástundun: Margrét Helga Haraldsdóttir Ísaksen
Framfarir: Lára Margrét Gísladóttir
5. flokkur karla:
Prúðmennska: Daníel Agnar Ásgeirsson
Ástundun: Gísli Rafnsson
Framfarir: Þorbergur Haraldsson
5. flokkur kvenna:
Prúðmennska: Lovísa Ósk Halldórsdóttir
Ástundun: Sara Rut Snorradóttir
Framfarir: Rósa Överby
6. flokkur karla
Prúðmennska: Jens Ingvar Gíslason Hjalti Hermann Gíslason
Ástundun: Sigurður Hannesson Dagur Benediktsson
Framfarir: Gísli Jörgen Gíslason Friðrik Þórir Hjaltason
6. flokkur kvenna:
Prúðmennska: Natalía Kaja Fjölnisdóttir
Ástundun: Kolfinna Brá Ewa Einarsdóttir
Framfarir: Aldís Huld Höskuldsdóttir
7. flokkur karla:
Prúðmennska: Magnús Þórir Þorsteinsson
Ástundun: Ívar Tumi Tumason
Framfarir: Birkir Eydal
7. flokkur kvenna:
Prúðmennska: María Björg Fjölnisdóttir
Ástundun: Auður Líf Benediktsdóttir
Framfarir: Jóhanna Ósk Gísladóttir
8. flokkur drengja:
Prúðmennska: Davíð Hjaltason
Ástundun: Ásgeir Óli Kristjánsson
Framfarir: Guðmundur Arnar Svavarsson
8. flokkur stúlkna:
Prúðmennska: Linda Rós Hannesdóttir
Ástundun: Þórunn Birna Bjarnadóttir
Framfarir: Hafdís Bára Höskuldsdóttir
Óskum við þessum iðkendum kærlega til hamingju með árangurinn en viljum líka beina því til þeirra sem ekki fengu verðlaun í þetta skiptið, að það er engin skömm að fá ekki slík verðlaun en gleymum ekki að fótboltinn er hópíþrótt og hver einstaklingur er mikilvægur og verðmætur. Þess vegna er ekkert annað að gera en halda áfram að æfa vel, bæta sig á öllum sviðum, hlýða þjálfaranum, styðja við félaga sína og þá eiga allir möguleika á verðlaunum á næsta ári.
Boltafélagið vill að lokum þakka Straumi kærlega fyrir styrkinn á þessari hátíð en fyrirtækið gaf verðlaunin sem veitt voru.