Æfingar fyrir börn fædd árin 2007-2009 hefjast fimmtudaginn 30. janúar og fara æfingar fram í Íþróttahúsinu á Torfnesi alla fimmtudaga kl. 14:00-15:00. Fyrstu þrjár vikurnar eru fríar og hvetjum við alla á aldrinum 10-12 ára að koma og prófa. Skráning á námskeiðið hefst í byrjun febrúar.

Markmið verkefnisins er að ná til barna sem eru í 5.-7. bekk í grunnskóla og eru ekki að stunda æfingar hjá aðildarfélögum HSV. Mest áhersla verður lögð á grunnþjálfun eins og stöðvaþjálfun þar sem hver og einn getur tekið þátt eftir sinni getu. Auk þess verða kynntar fyrir þátttakendum hinar ýmsu einstaklingsíþróttagreinar svo sem bogfimi, golf, sund, hestamennska, hjólreiðar, glíma og skylmingar. Áhersla verður líka lögð á hópeflisleiki til þess að hrista hópinn saman og efla félagsleg tengsl iðkenda. Takmarkið er að krakkarnir fái áhuga og finni ánægju af að stunda hreyfingu og íþróttir.

Hægt er að gera undantekningu á aldursskiptingu ef einhver börn finna sig ekki í Íþróttaskólanum eða Afreksformi HSV.

Umsjón með æfingum hefur Bjarney Gunnarsdóttir, yfirþjálfari Íþróttaskólans.

Nánari upplýsingar á ithrottaskoli@hsv.is eða í síma 6963984.