Um helgina var mikið um að vera í íþróttalífinu hér í Ísafjarðarbæ.  Lætin byrjuðu á fimmtudagskvöld þegar meistaraflokkur KFÍ spilaði sinn fyrsta heimaleik í Icelandexpress deild karla í körfuknattleik.  Þar sigrðuð heimamenn Tindastól örugglega 85-70.  Drengjaflokkur KFÍ mætti Stjörnuna í heimaleik á laugardaginn og eftir erfiða byrjun náðu strákarnir að innbyrða góðan sigur 68-58.  Meistaraflokkur kvenna heldur áfram að spila vel og sigruðu Grindavík-b á útivelli örugglega 61-40.  Liðið virðist vera á góðu skriði og byrjað tímabilið á tveimur sigrum. 
 Meistaraflokkur karla spilaði svo við geysisterkt lið Grindavíkur á útivelli á sunnudaginn.  Eftir að hafa verið yfir í hálfleik og veitt Grindavík mikla mótspyrnu fór svo að lokum að heimamenn náðu að knýja fram sigur 96-87.  Það var greinilegt á þessum leik að KFÍ eru ekki komnir í úrvaldsdeild að ástæðu lausu og munu vera erfiðir mótherjar í vetur.  Frekari umfjöllun um leiki KFÍ um helgina er að finna á heimasíðu félagsins www.kfi.is .

Strákarnir í 2.flokki Harðar í handknattleik léku sinn fyrsta leik í vetur á móti sterku liði HK.  HK-ingar sigruðu leikinn og voru Harðar strákar svolítið ryðgaðir í fyrsta leik en mikið býr í þessu liði og eiga þeir vafalítið eftir að ná sér á strik í vetur og ná inn góðum úrslitum.

Boltafélag Ísafjarðar hélt lokahóf sitt um helgina í íþróttahúsinu Torfnesi.  Þar kom fram að iðkendur BÍ í sumar voru um 180 talsins strákar og stelpur og kepptu flest allir flokkar á Íslandsmóti í sumar.  Veitt voru verðlaun og viðurkenningar og að lokum fengu sér allir góðar veitingar á glæsilegu kökuhlaðborði.