Hermann fædd­ist á Ísafirði 28. febrúar 1948. For­eldr­ar hans voru hjón­in Níels Guðmundsson málarmeistari og Guðrún Sigurðardóttir húsmóðir. Hermann var elstur fimm ­systkina. Hann lést hinn 21. janú­ar 2015.
Hermann var alla ævi ötull talsmaður íþrótta og heilbrigðs lífernis. Hann helgaði líf sitt íþróttum og var virkur í uppbygginu og starfi íþróttafélaga. Hann var lengi íþróttakennari við Alþýðuskólann á Eiðum og var á þeim tíma í forsvari fyrir íþróttahreyfinguna á Austurlandi. Hér á Ísafirði starfaði Hermann sem íþróttakennari við Menntaskólann á Ísafirði. Sem formaður Knattspyrnufélagsins Harðar á Ísafirði hefur hann sinnt uppbyggingu glímuíþróttarinnar svo eftir því var tekið, auk annarra íþrótta.  Ekki má gleyma starfi Hermanns í þágu almenningsíþrótta en hann átti lengi sæti í Trimmnefnd ÍSÍ og og stóð að átakinu Heilsuefling í Ísafjarðarbæ.

Hermann var góður félagi og þakkar HSV fyrir hans mikla og góða starf fyrir íþróttahreyfinguna í Ísafjarðarbæ.

HSV sendir aðstandendum samúðarkveðjur.