Héraðsþing HSV var haldið miðvikudaginn 15. maí síðastliðinn í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. Á þingið voru mættir fulltrúar flestra aðildarfélaga HSV.

Fyrirferðamesta málið á þinginu var vinna við stefnur og áætlanir sambansins. Fyrir þingi lágu tillögur að Viðbragðsáætlun, Jafnréttisáætlun, Fræðslu- og forvarnarstefnu, Umhverfisstefnu og Félagsmálastefnu. Nokkrar umræður urðu í allsherjarnefnd þingsins og var niðurstaða nefndarinnar að vísa framlagðri tillögu að Jafnréttisáætlun HSV til stjórnar að nýju til frekari vinnslu. Þótti nefndinni að vel væri tekið á kynjajafnrétti en nánari útfærslu vantaði varðandi jafnrétti milli ólíkra þjóðfélagshópa, t.d. fólks af erlendum uppruna. Sömuleiðis var niðurstaða nefndarinnar að vísa framlagðri Fræðslu- og forvarnarstefnu HSV til stjórnar til frekari vinnslu með tiliti til samræmis á milli stefnuyfirlýsingar og markmiða, einkum með það í huga hvort einhver markmið ættu betur heima í framlagðri Viðbragðsáætlun. Samþykkt þessara tveggja stefnanna yrði svo endanlega afgreidd á formannafundi. Þessi tillaga allsherjarnefndar var samþykkt samhljóða af þingfulltrúum. Aðrar tillögur stjórnar meðal annars fjárhagsáætlun voru samþykktar samhljóða.

Á þinginu voru nokkrir gestir mættir meðal annara fulltrúar Ísafjarðarbæjar, UMFÍ og ÍSÍ og formenn nágrannahéraðssambandanna HHF og HSS. Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri UMFÍ ávarpaði þingið og sæmdi síðan hjónin Rósu Þorsteinsdóttur og Árna Aðalbjarnarson starfsmerki UMFÍ fyrir þeirra störf fyrir íþróttastarf í bænum. Einnig veitti hún Guðnýju Stefaníu Stefánsdóttur fyrrum formann HSV gullmerki UMFÍ fyrir hennar framlag til íþrótta- og félagsmála. Ingi Þór Ágústsson fyrrum formaður og framkvæmdastjóri HSV sem nýverið var endurkjörinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ flutti einnig ávarp og ræddi nokkuð um Ferðasjóð ÍSÍ og greiðslur úr honum til aðildarfélaga HSV. Í máli hans kom fram að stofnun Vestra hefur haft mjög jákvæð áhrif á úthlutun styrkja úr sjóðnum hingað á svæðið. Ingi Þór sæmdi síðan Tryggva Sigtryggsson og Þröst Jóhannesson gullmerki fyrir þeirra áratuga störf og áhuga á framgangi íþróttamála á Ísafirði.

Ásgerður Þorleifsdóttir formaður HSV veitti fjórum einstaklingum silfurmerki HSV; Guðrúnu Ásbjörgu Stefánsdóttur GÍ, Reyni Péturssyni GÍ, Heimi Hanssyni SFÍ og Jón Hálfdáni Péturssyni Vestra. Hún sæmdi einnig tvo einstaklinga gullmerki sambandsins, þeim Marinó Hákonarsyni og Finni Magnússyni GÍ.

Ásgerður Þorleifsdóttir var endurkjörinn formaður HSV. Nýr í stjórn var kosinn Heimir Hansson í stað Inga Björns Guðnasonar sem ekki gaf kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa.  Ásamt þeim Ásgerði og Heimi sitja nú í stjórn HSV; Hildur Elísabet Pétursdóttir sem var endurkjörin í stjórn, Karl Ásgeirsson og Baldur Ingi Jónasson. Í vara stjórn voru endurkjörnar Elísa Stefánsdóttir og Karlotta Dúfa Markan og Margrét Arnardóttir sem kemur ný í varastjórn í stað Heimis Hanssonar.

Einnig var kosið í stjórn Afrekssjóð HSV. Hana skipa Guðný Stefanía Stefánsdóttir, Jakob Einar Jakobsson og Yngvi Gunnlaugsson. Til vara Gísli Jón Hjaltason og Salome Elin Ingólfsdóttir. Í stjórn styrktarsjóðs þjálfara HSV voru kjörin Guðný Stefanía Stefánsdóttir, Jóhann Króknes Torfason og Baldur Ingi Jónasson.

Um miðbik þings var gert matarhlé og var þá borin fram súpa ásamt kaffi og meðlæti, framreitt af fulltrúum Skíðafélags Ísfirðinga.

Þingi var slitið um kl. 21.30.