Forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og forseti FIBA Europe, Ólafur Eðvarð Rafnsson, er látinn, fimmtugur að aldri.


Ólafur varð bráðkvaddur í Sviss nú fyrr í dag þar sem hann sótti  fund í miðstjórn FIBA World , Alþjóða Körfuknattleikssambandsins.


Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn.


Ólafur starfaði sem lögmaður og rak eigin lögmannsstofu í Hafnarfirði.


Ólafur Eðvarð Rafnsson var formaður Körfuknattleikssambands Íslands frá árinu 1996 til 2006 en það ár var hann kosinn forseti ÍSÍ.  Ólafur var kjörinn forseti FIBA Europe árið 2010. Hann tók í lok síðasta mánaðar við stöðu forseta framkvæmdastjórnar Smáþjóðaleikanna.  Ólafur stundaði sjálfur körfuknattleik um árabil með Haukum og  lék m.a. með landsliði Íslands.


HSV vottar fjölskyldu Ólafs sína dýpstu samúð.