Mateusz Klóska hefur verið besti leikmaðurinn í karlaliði Vestra í blaki undanfarin ár. Hann átti stóran þátt í sigri Vestra í 1. deild á árinu og spilar nú með liðinu í úrvalsdeild. Mateusz hefur sýnt í haust að hann er í hópi bestu blakara landsins. Hann er stigahæsti maður Vestra nú þegar tímabilið er hálfnað og er einnig með þeim stigahæstu í allri deildinni. Þjálfarar og leikmenn úrvalsdeildar völdu nýverið Mateusz í draumalið fyrri hluta tímabilsins í Mizuno deildinni í blaki. Mateusz er góð fyrirmynd fyrir yngri leikmenn og jákvæður og hjálpsamur liðsfélagi.
Það voru Elísabet Samúelsdóttir formaður íþrótta- og tómstundanefndar og Kristján Kristjánsson forseti bæjarstjórnar sem tilkynntu valið og afhentu Mateuszi viðurkenninguna.