HSV og Ísafjarðarbær efna í sumar til sparkvallarkeppni milli hverfa. Fyrirkomulagið verður þannig að krakkar skrá liðið sitt á ákveðinn völl í hverfinu sínu.
Keppt verður innan hverfis um sæti í úrslitum og mun eitt lið í hvorum aldursflokki komast áfram á Sparkvallarleikana sem verða helgina 13.-14. september.
Flokkaskiptingin verður krakkar fæddir 1994-1996 verða saman og krakkar fæddir 1997 og síðar verða saman. Fimm leikmenn verða inná í hverju liði en auðvitað geta liðin verið stærri.
Hverfaskiptingin verður eftirfarandi: Hnífsdalur, eyrin neðan Túngötu, efri bærinn, fjörðurinn, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri.
Skráning liða á að berast á netfangið bolti@isafjordur.is og þarf að koma fram hver er í forsvari. Þátttökulið verða birt á heimasíðu HSV 15. júlí.