Starf yfirþjálfara Íþróttaskóla HSV laust til umsóknar
Stjórn Héraðssambands Vestfirðinga auglýsir 100% starf yfirþjálfara Íþróttaskóla HSV laust til umsóknar. HSV er með starfssvæði í Ísafjarðarbæ og Súðarvíkurhrepp og hefur 15 virk aðildarfélög innan sinna vébanda. Sambandið vinnur náið með sveitarfélögunum tveimur að uppbyggingu íþróttamála á svæðinu ásamt því að vinna með aðildarfélögum að framgangi einstakra íþróttagreina.
Íþróttaskóli HSV var settur á fót haustið 2011 og er samstarfsverkefni HSV, aðildarfélaga HSV og Ísafjarðarbæjar. Skólinn er fyrir öll börn 1.-4. bekkjar í grunnskólum Ísafjarðarbæjar. Lögð er áhersla á grunnþjálfun og að börnin fái þjálfun í flestum þeim íþróttagreinum sem í boði eru á eldri stigum aðildarfélaga HSV. Ísafjarðarbær styður verkefnið og er skólinn ein af grunnstoðum í samstarfssamningi Ísafjarðarbæjar og HSV sem fyrst var undirritaður veturinn 2010-2011.
Markmið skólans eru að:
• hvetja og fá sem allra flest börn til að iðka íþróttir
• fyrstu kynni barna af íþróttaiðkun séu jákvæð
• börn fái tækifæri til að kynnast sem flestum íþróttagreinum
• auka gæði þjálfunar
• lækka kostnað heimila við íþróttaiðkun barna
• auka grunnþjálfunarhluta æfinga, almenna hreyfingu, hreyfiþroska og hreyfigetu
Yfirþjálfari Íþróttaskóla HSV ber ábyrgð á daglegum rekstri hans ásamt samskiptum við Ísafjarðarbæ, aðildarfélög, foreldra og börn í skólanum.
Helstu verkefni:
• Yfirumsjón með öllu daglegu starfi Íþróttaskóla HSV, skipulagi, þjálfaramálum og stundaskrárgerð
- Umsjón með grunnþjálfun barna í 1.-4. bekkog þjálfun barna í 1.-2. bekk ásamt annarri þjálfun sem við á í samstarfi við aðildarfélög HSV
• Skipulagning og eftirlit með framkvæmd þjálfunar íþróttagreina í skólanum
• Umsjón með heimasíðu Íþróttaskólans og fréttum honum tengdar
• Samskipti við aðildarfélög, þjálfara aðildarfélaga, dægradvöl, foreldra og forráðamenn barna í Íþróttaskólanum
• Halda utan um skráningar og skráningakerfi skólans
Hæfnikröfur:
Leitað er að einstaklingi með reynslu af þjálfun barna. Íþróttakennaramenntun, þjálfaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur en ekki skilyrði. Yfirþjálfarinn þarf að vera fyrirmynd fyrir börn og fullorðna og koma vel fyrir. Jákvætt hugarfar, sjálfstæð vinnubrögð, góð samskiptafærni, sveigjanleiki og ríkur vilji til að vinna með börnum eru skilyrði. Áhugi á uppbyggingu íþróttastarfs í Ísafjarðarbæ er mikilvægur kostur.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Æskilegast að viðkomandi geti hafið störf 1.ágúst 2020 eða eftir nánara samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 11.júní 2020. Nánari upplýsingar um starfið gefur Ásgerður Þorleifsdóttir formaður HSV í s. 697-7867, eða í gegnum tölvupóstfangið formadur@hsv.is. Umsóknir skulu berast til Bjarka Stefánssonar framkvæmdastjóra HSV í netfangið hsv@hsv.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Stjórn HSV áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.