Héraðssamband Vestfirðinga auglýsir eftir umsóknum í styrktarsjóð þjálfara. Samkvæmt reglugerð sjóðsins er honum ætlað að auka þekkingu og færni þjálfara og með því móti auka gæði þjálfunar og efla íþróttastarf í sveitarfélaginu.  Sjóðsstjórn er heimilt að úthluta styrkjum til aðila utan vébanda HSV, enda muni viðkomandi verkefni verða íþróttalífi og félögum í Ísafjarðarbæ til hagsbóta.

Umsóknarfrestur er til 31. júlí 2014
 

Vakin er sérstök áhersla á reglugerð sjóðssins sem finna má á heimasíðu HSV www.hsv.is . 

Ef einhverjar spurningar vakna þá má hafa samband við Pétur Markan, framkvæmdastjóra HSV,  í síma 698-4842