Umsóknarfrestur í afreksmannasjóð HSV hefur verið framlengdur til 4. desember næstkomandi.  Við hvetjum sem flesta til að sækja um í þennan sjóð sem hefur hjálpað ungu íþróttafólki mikið í gegnum árin. 

 

Við hvetjum einnig formenn deilda innan HSV að koma skilaboðum til sinna iðkenda og hvetja þau að sækja um í sjóðinn.

 

Nú er búið að opna fyrir umsóknir í Afrekssjóð HSV. Samkvæmt reglugerð Afrekssjóðs HSV er markmið sjóðsins að styrkja unga og efnilega íþróttamenn með því að gera eins árs samning við viðkomandi (8. grein). En einnig er heimilt að úthluta einstaka styrkjum til þeirra íþróttamanna sem ekki falla undir skilyrði til samnings (9. grein).

  1. grein

Meginmarkmið sjóðsins er að styrkja unga og efnilega íþróttamenn sem líklegir eru til að verða afreksmenn í framtíðinni. Sjóðurinn skal ná því markmiði með því að gera eins árs samning við viðkomandi. 

  1. grein

Heimilt er að úthluta úr Afrekssjóðnum einu sinni á ári til þeirra íþróttamanna sem ekki falla undir skilyrði til langtímasamnings.

Við höfum nú uppfært umsóknarferlið fyrir sjóðinn og er það eins hvort sem sótt er um að gera samning eða fá einstaka styrki, umsækjandi velur í ferlinu hvoru hann sækist eftir. Umsækjandi sem óskar eftir samningi en fær ekki mun sjálfkrafa færast yfir í hóp þeirra sem sækja um einstaka styrki.

Umsóknarferlið fer fram í gengum heimasíðu HSV líkt og verið hefur. Slóðin inn á ferlið er www.hsv/umsokn  Setja þarf inn notendanafn og aðgangsorð hvers félags/deildar og opnast þá umsóknarkerfi sjóðsins.

Aðgangur hvers félags/deildar hefur þegar verið sendur til formanna.

Umsóknarfrestur er til og með 4. desember