Ungur Vestfirðingur reynir sig í spjótkasti.
Ungur Vestfirðingur reynir sig í spjótkasti.

 

Héraðssamband Vestfirðinga auglýsir eftir umsóknum í Afreksmannasjóð sambandsins. Geta allir íþróttamenn sótt um styrk í sjóðinn svo framarlega sem þeir séu aðilar innan HSV og uppfylli þau skilyrði sem eru í 7. grein laga Afreksmannasjóðsins.

 

7. gr.

Stjórn sjóðsins getur veitt styrk ef viðkomandi uppfyllir eitthvert eftirtalinna skilyrða:

Ef hann keppir á eða hefur möguleika á þátttöku á Ólympíu-, Heims-, Evrópu- eða

Norðurlandameistaramótum.

Ef hann er valinn í landslið eða úrtök fyrir landslið. Ef hann er framarlega í íþróttagrein

sinni á landsvísu eða hefur sýnt mjög góðan árangur og er líklegur til að komast í hóp

bestu íþróttamanna landsins í íþróttagrein sinni. Skal þá miðað við styrkleikaflokkun

sérsambanda (sé hún til).

Lið eða hópur geta fengið úthlutað ef þau eru framarlega í íþróttagrein sinni á landsvísu

eða hafa sýnt mjög góðan árangur og eru líkleg til að komast í hóp bestu liða/hópa

 

Hægt er að sjá reglugerð sjóðsins inni á heimasíðu HSV.  

Umsóknir skulu berast á netfangið hsv@hsv.is eða á skrifstofu HSV. Skrifstofa HSV er opin mán., þrið. og miðvikudaga fyrir hádegi og fimmtudaga og föstudaga frá 9 til 16.

 

Umsóknarfrestur er til  20. mars 2013

 

Frekari upplýsingar og spurningar varðandi sjóðinn sendist í tölvupósti: hsv@hsv.is eða í síma 698- 4842 hjá framkvæmdastjóra.