- 7.09.21
- Dagný Finnbjörnsdóttir
Bjarni Fritz
Bjarni Fritz ætlar að koma með eins dags námskeið fyrir iðkendur félaga innan HSV og verður það byggt á Vertu óstöðvandi námskeiðinu hans. En Vertu óstöðvandi er íþróttasálfræði námskeið fyrir ungt íþróttafólk sem vill styrkja sig andlega og læra um leið hvað það þarf að gera til að ná enn betri árangri í sinni íþrótt. Á námskeiðinu er lögð áhersla á kennslu í gegnum fyrirlestra, verkefnavinnu, hagnýt heimaverkefni, framkoma og fjörefli.
Um kvöldið mun Bjarni svo kom og hitta foreldra iðkenda HSV og halda fyrir þau foreldrafyrirlesturinn Efldu barnið þitt. Þar fer hann yfir hvað foreldra geta gert til að hafa jákvæð áhrif á börnin sín. Meðal þess sem farið verður yfir er: Hvernig við eflum börnin okkar með því að vera fyrirmyndir. Hvernig við styrkjum sjálfsmynd barnanna okkar og vinnum markvisst að því að gera hana jákvæða? Hvernig getum við hjálpað börnunum okkar að ná betri árangri, öðlast meira sjálfstraust og geta tekist á við mótlæti? Hvernig getur núvitund eflt börnin okkar og hvernig getum við kennt þeim að dvelja ekki við neikvæðar hugsanir?
Bjarni Fritz sem hannaði og kennir námskeiðið er sálfræðimenntaður fyrrum landsliðs- og atvinnumaður í handknattleik, þjálfari U-20 ára landsliðsins og mfl. í handknattleik. Metsöluhöfundur Orra óstöðvandi bókanna og eigandi sjálfstyrkingarfyrirtækið Út fyrir kassann. Sjá nánar bjarnifritz.com
Staðsetningið – Fundarsalur í MÍ (stofa 17)
fimmtudaginn 16. september
Dagskrá:
16:00-18:00 Ætlað iðkendur í 7. – 10. bekk
19:00-20:00 Þjálfarar
20:00-21:00 Foreldrar
Nánar
- 1.09.21
- Dagný Finnbjörnsdóttir
Hvað get ég gert?
Komi ofbeldismál upp innan íþróttafélags verða stjórnendur að senda það af heimavelli í hendur sérfræðinga.
Af gefnu tilefni vill UMFÍ benda á leiðir sem unnt er að nýta þegar upp koma vísbendingar um ofbeldisverk eða aðra óæskilega hegðun inna íþrótta- og æskulýðsstarfs af hvaða tagi sem það er. Mikilvægt er að öll ofbeldismál eða vitneskja um málin verði tekin af heimavelli þeirra og unnin af fagfólki. Hvert íþróttafélag eða deild innan íþróttafélaga á ekki að vinna í því í sínu horni. Það er öllum fyrir bestu.
Æskulýðsvettvangurinn
Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsvettvangur UMFÍ, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Vettvangurinn var formlega stofnaður árið 2012.
Hægt er að tilkynna um ofbeldi og óæskilega hegðun til Æskulýðsvettvangsins. Hann býður jafnframt aðildarfélögum og öllum þeim sem þess óska upp á ýmis konar fræðslu auk netnámskeiðsins Barnavernd, en því er ætlað að auka þekkingu starfsfólks og sjálfboðaliða í íþrótta- og æskulýðsstarfi um allt land um einelti, ofbeldi og áreitni og hvaða formi sem ofbeldið birtist.
Nánar um námskeiðið Barnavernd
Samskiptaráðgjafinn
Samskiptaráðgjafi í íþrótta- og æskulýðsstarfi tók til starfa árið 2019.
Starf samskiptaráðgjafa nær til allrar skipulagðrar starfsemi eða starfsemi í tengslum við hana á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Ungmennafélags Íslands og æskulýðssamtaka sem starfa á grundvelli æskulýðslaga.
Mikilvægar vefsíður og tenglar
Æskulíðsvettvangurinn
Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs
UMFÍ áréttar jafnframt að íþrótta- og æskulýðsfélögum er óheimilt að ráða til starfa fólk sem hefur hlotið refsidóm vegna kynferðis- og annarra ofbeldisbrota, auk brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni á síðastliðnum fimm árum. Reglurnar ná jafnt til starfsfólks og sjálfboðaliða á vegum íþróttafélaga sem hafa umsjón með börnum og ungmennum undir 18 ára aldri.
Siðareglur HSV
Siðareglur HSV má finna hér, og er mikilvægt að okkar aðildarfélög séu meðvituð um þær.
Viðbragðsáætlun HSV má lesa hér
Hlutverk siðareglna er að veita þeim sem koma að íþróttum almennar leiðbeiningar og vera þeim hvatning. Þær eru hluti af þeim anda sem á að vera ríkjandi í félaginu og þurfa að njóta almenns stuðnings meðal félagsmanna. Þær eru ekki tæmandi, heldur leiðbeinandi og hvetjandi. Aðhaldið felst í almennu viðhorfi til boðskapar reglnanna.
Nánar
- 19.08.21
- Heiðar Birnir Torleifsson
Íþróttaskóli HSV auglýsir eftir þjálfurum
Íþróttaskóli HSV auglýsir eftir þjálfurum fyrir komandi vetur, þá sérstaklega sundþjálfurum.
Áhugasamir hafið samband við Heiðar Birnir yfirþjálfara íþróttaskóla HSV í síma 856-0300 eða á ithrottaskoli@hsv.is
Nánar
- 16.07.21
- Bjarki Stefánsson
Skrifstofa HSV lokið til 3. ágúst
Vegna sumarleyfa verður skrifstofa HSV lokuð til þriðjudagsins 3. ágúst
Öllum póstum verður svarað þegar skrifstofa opnar aftur.
Nánar
- 8.07.21
- Bjarki Stefánsson
Nýr framkvæmdastjóri HSV- Dagný Finnbjörnsdóttir
Dagný Finnbjörnsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra HSV.
Dagný útskrifaðist með stúdentspróf frá Menntaskólanum á Ísafirði 2008, öðlaðist meistararéttindi í snyrtifræðum frá Verkmenntaskólanum á Akureyri 2012 og lauk B.Ed. gráðu í kennarafræðum frá Háskólanum á Akureyri 2020.
Dagný hefur starfað sem umsjónarmaður yngri flokka körfuknattleiksdeildar Vestra og sem körfuknattleiksþjálfari frá árinu 2017. Frá árinu 2015 hefur hún verið annar eigandi fataverslunarinnar Jón og Gunna ehf og hefur þaðan umtalsverða reynslu af rekstri. Þá rak hún einnig fyrirtæki á eigin vegum á árunum 2010 til 2016. Frá 2020 hefur Dagný svo gengt starfi umsjónarkennara/ leiðbeinanda við Grunnskóla Bolungarvíkur. Dagný hefur formlega störf 1.ágúst n.k.
HSV býður Dagnýju velkomna til starfa.
Nánar