- 24.06.20
- Bjarki Stefánsson
Breytingar á stjórn HSV
18. júní síðastliðinn var ársþing HSV haldið í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. Þingforseti var Jens Kristmannsson sem stýrði þinginu með mikilli prýði. Alls mættu 25 fulltrúar af 51 boðuðum. Allar 6 tillögurnar sem lágu fyrir þinginu voru samþykktar, þar með talin fjárhagsáætlun HSV. Ásgerður Þorleifsdóttir var endurkjörin formaður sambandsins og Baldur Ingi Jónasson og Margrét Björk Arnardóttir voru kosin í stjórn til tveggja ára. Karl Kristján Ásgeirsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn HSV en hann hefur sið sem gjaldkeri síðan 2016. HSV þakkar Karli innilega fyrir hans framlag til sambandsins í gegnum árin. Fulltrúi ÍSÍ á þinginu var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri.
Stjórn er þannig skipuð: Ásgerður Þorleifsdóttir formaður, Hildur Elísabet Pétursdóttir, Heimir Hansson, Margrét Arnardóttir og Baldur Ingi Jónasson.
Varastjórn: Tinna Hrund Hlynsdóttir Hafberg, Dagný Finnbjörnsdóttir og Helga Björt Möller.
Þinggerð má finna á heimasíðu HSV undir ársþing.
Nánar
- 22.06.20
- Bjarki Stefánsson
Ánægjuvog ÍSÍ og UMFÍ
Þann 12.júní síðastliðin voru niðurstöður í ánægjuvog ÍSÍ og UMFÍ kynntar. Það var Margrét Lilja Guðmundsdóttir sem að kynnti niðurstöðurnar.
Í niðurstöðum Ánægjuvogarinnar kemur m.a. fram að 61% nemenda í efstu bekkjum grunnskóla æfir með íþróttafélagi einu sinni í viku eða oftar. Meirihluti nemendanna metur andlega og líkamlega heilsu sína góða, eru síður líkleg til að sýna af sér frávikshegðun og neyta vímuefna.
Margrét Lilja segir niðurstöður rannsókna Rannsókna og greininga sýna ótvírætt kosti íþróttastarfsins. Bæði í þágu lýðheilsu og sem forvarnargildi.
Alls voru 51 einstaklingur sem að tóku þátt í könnuninni hjá HSV, 28 strákar (48%) og 31 stelpa (52%) úr 8,9 og 10 bekk í grunnskóla.
Dæmi um niðurstöður:
88% hafa gaman af æfingum.
87 % eru ánægð með sitt íþróttafélag
40% unglinga sem æfa ekki hafa orðið ölvaðir 1x eða oftar um ævina samanborið við 6% þeirra sem æfa.
0% unglinga sem æfa ekki íþróttir með íþróttafélagi reykja daglega samanborið við 2% þeirra sem æfa.
Hægt er að skoða niðurstöður úr þessari könnun nánar undir stefnur og áætlanir á heimasíðu HSV
Nánar
- 4.06.20
- Bjarki Stefánsson
Sumaræfingar hjá kkd. Vestra
Nánar
- 29.05.20
- Bjarki Stefánsson
Knattspyrnudeild Vestra auglýsir eftir yfirþjálfara yngri flokka.
Knattspyrnudeild Vestra leitar að öflugum einstakling til að taka að sér starf yfirþjálfara yngri flokka félagsins. Starfshlutfallið er sveigjanlegt, getur verið 50-100% eftir samkomulagi. Hluti af vinnunni verður almenn þjálfun yngri flokka. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á knattspyrnuþjálfun.
Umsóknarfrestur er til 1.júlí 2020. Umsókn ásamt ferilskrá óskast sent á Tinnu Hrund Hlynsdóttur Hafberg formann barna og unglingaráðs tinnahrund85@gmail.com. Nánari upplýsingar gefur Kristján í síma 8614668. Óskað er eftir því að nýr yfirþjálfari geti hafið störf 1.ágúst n.k.
Nánar
- 27.05.20
- Bjarki Stefánsson
Starf yfirþjálfara íþróttaskóla HSV laust til umsóknar.
Starf yfirþjálfara Íþróttaskóla HSV laust til umsóknar
Stjórn Héraðssambands Vestfirðinga auglýsir 100% starf yfirþjálfara Íþróttaskóla HSV laust til umsóknar. HSV er með starfssvæði í Ísafjarðarbæ og Súðarvíkurhrepp og hefur 15 virk aðildarfélög innan sinna vébanda. Sambandið vinnur náið með sveitarfélögunum tveimur að uppbyggingu íþróttamála á svæðinu ásamt því að vinna með aðildarfélögum að framgangi einstakra íþróttagreina.
Íþróttaskóli HSV var settur á fót haustið 2011 og er samstarfsverkefni HSV, aðildarfélaga HSV og Ísafjarðarbæjar. Skólinn er fyrir öll börn 1.-4. bekkjar í grunnskólum Ísafjarðarbæjar. Lögð er áhersla á grunnþjálfun og að börnin fái þjálfun í flestum þeim íþróttagreinum sem í boði eru á eldri stigum aðildarfélaga HSV. Ísafjarðarbær styður verkefnið og er skólinn ein af grunnstoðum í samstarfssamningi Ísafjarðarbæjar og HSV sem fyrst var undirritaður veturinn 2010-2011.
Markmið skólans eru að:
• hvetja og fá sem allra flest börn til að iðka íþróttir
• fyrstu kynni barna af íþróttaiðkun séu jákvæð
• börn fái tækifæri til að kynnast sem flestum íþróttagreinum
• auka gæði þjálfunar
• lækka kostnað heimila við íþróttaiðkun barna
• auka grunnþjálfunarhluta æfinga, almenna hreyfingu, hreyfiþroska og hreyfigetu
Yfirþjálfari Íþróttaskóla HSV ber ábyrgð á daglegum rekstri hans ásamt samskiptum við Ísafjarðarbæ, aðildarfélög, foreldra og börn í skólanum.
Helstu verkefni:
• Yfirumsjón með öllu daglegu starfi Íþróttaskóla HSV, skipulagi, þjálfaramálum og stundaskrárgerð
- Umsjón með grunnþjálfun barna í 1.-4. bekkog þjálfun barna í 1.-2. bekk ásamt annarri þjálfun sem við á í samstarfi við aðildarfélög HSV
• Skipulagning og eftirlit með framkvæmd þjálfunar íþróttagreina í skólanum
• Umsjón með heimasíðu Íþróttaskólans og fréttum honum tengdar
• Samskipti við aðildarfélög, þjálfara aðildarfélaga, dægradvöl, foreldra og forráðamenn barna í Íþróttaskólanum
• Halda utan um skráningar og skráningakerfi skólans
Hæfnikröfur:
Leitað er að einstaklingi með reynslu af þjálfun barna. Íþróttakennaramenntun, þjálfaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur en ekki skilyrði. Yfirþjálfarinn þarf að vera fyrirmynd fyrir börn og fullorðna og koma vel fyrir. Jákvætt hugarfar, sjálfstæð vinnubrögð, góð samskiptafærni, sveigjanleiki og ríkur vilji til að vinna með börnum eru skilyrði. Áhugi á uppbyggingu íþróttastarfs í Ísafjarðarbæ er mikilvægur kostur.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Æskilegast að viðkomandi geti hafið störf 1.ágúst 2020 eða eftir nánara samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 11.júní 2020. Nánari upplýsingar um starfið gefur Ásgerður Þorleifsdóttir formaður HSV í s. 697-7867, eða í gegnum tölvupóstfangið formadur@hsv.is. Umsóknir skulu berast til Bjarka Stefánssonar framkvæmdastjóra HSV í netfangið hsv@hsv.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Stjórn HSV áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Nánar