- 11.12.20
- Bjarki Stefánsson
Áskorun íþróttahéraða!
Áskorun íþróttahéraða!
Íþróttahreyfingin fagnar þeim tilslökunum sem gerðar eru í nýrri reglugerð um íþróttastarf en lýsir þungum áhyggjum af unglingunum á framhaldsskólaaldri. Þessi hópur virðist hafa gleymst þegar kemur að útfærslu á takmörkunum hverju sinni.
Raddir unga fólksins okkar eru því miður of fáar og þegar við getum ekki hvatt þau til íþróttaiðkunar í jafn langan tíma og raun ber vitni þá höfum við miklar áhyggjur af brottfalli þeirra sem myndi auka líkur á frávikshegðun með tilheyrandi vandamálum.
Íþróttahéruðin hvetja stjórnvöld til að endurskoða afstöðu sína til þessa viðkvæma hóps í þeim afléttingum sem nú þegar eru samþykktar og hleypa fyrrnefndum aldurshópi inn í íþrótta- og æskulýðsstarf á ný, með og án snertinga og með þeim fjöldatakmörkunum sem gilda fyrir íþróttastarf.
Íþróttakveðja,
Héraðassambandið Hrafnaflóki
Héraðssamband Bolungarvíkur
Héraðssambandið Skarphéðinn
Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu
Héraðssamband Strandamanna
Héraðssamband Vestfirðinga
Héraðssamband Þingeyinga
Íþróttabandalag Akraness
Íþróttabandalag Akureyrar
Íþróttabandalag Hafnarfjarðar
Íþróttabandalag Reykjavíkur
Íþróttabandalag Reykjanesbæjar
Íþróttabandalag Vestmannaeyja
Íþróttabandalag Suðurnesja
Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga
Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands
Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar
Ungmennasamband Borgarfjarðar
Ungmennasamband Eyjafjarðar
Ungmennasamband Kjalarnesþings
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga
Ungmennasambandið Úlfljótur
Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga
Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu
Nánar
- 23.11.20
- Bjarki Stefánsson
Umsóknarfrestur í afreksmannasjóð HSV lengdur.
Umsóknarfrestur í afreksmannasjóð HSV hefur verið framlengdur til 4. desember næstkomandi. Við hvetjum sem flesta til að sækja um í þennan sjóð sem hefur hjálpað ungu íþróttafólki mikið í gegnum árin.
Við hvetjum einnig formenn deilda innan HSV að koma skilaboðum til sinna iðkenda og hvetja þau að sækja um í sjóðinn.
Nú er búið að opna fyrir umsóknir í Afrekssjóð HSV. Samkvæmt reglugerð Afrekssjóðs HSV er markmið sjóðsins að styrkja unga og efnilega íþróttamenn með því að gera eins árs samning við viðkomandi (8. grein). En einnig er heimilt að úthluta einstaka styrkjum til þeirra íþróttamanna sem ekki falla undir skilyrði til samnings (9. grein).
- grein
Meginmarkmið sjóðsins er að styrkja unga og efnilega íþróttamenn sem líklegir eru til að verða afreksmenn í framtíðinni. Sjóðurinn skal ná því markmiði með því að gera eins árs samning við viðkomandi.
- grein
Heimilt er að úthluta úr Afrekssjóðnum einu sinni á ári til þeirra íþróttamanna sem ekki falla undir skilyrði til langtímasamnings.
Við höfum nú uppfært umsóknarferlið fyrir sjóðinn og er það eins hvort sem sótt er um að gera samning eða fá einstaka styrki, umsækjandi velur í ferlinu hvoru hann sækist eftir. Umsækjandi sem óskar eftir samningi en fær ekki mun sjálfkrafa færast yfir í hóp þeirra sem sækja um einstaka styrki.
Umsóknarferlið fer fram í gengum heimasíðu HSV líkt og verið hefur. Slóðin inn á ferlið er www.hsv/umsokn Setja þarf inn notendanafn og aðgangsorð hvers félags/deildar og opnast þá umsóknarkerfi sjóðsins.
Aðgangur hvers félags/deildar hefur þegar verið sendur til formanna.
Umsóknarfrestur er til og með 4. desember
Nánar
- 23.11.20
- Bjarki Stefánsson
Opnað fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk vegna áhrifa af Covid-19
Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga. Alls verður um 900 milljónum króna varið í verkefnið árin 2020 og 2021 en Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, kynnti aðgerðina í vor og er hún hluti af aðgerðapakka sem ætlað er að veita mótvægi vegna þeirra áhrifa sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á afkomu efnaminni heimila í landinu. Í framhaldinu verður ráðist í vitundavakningu í samstarfi við menntamálaráðuneytið, sveitarfélög, Íþróttasamband Íslands og Ungmennafélag Íslands.
Hægt er að sækja um styrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júlí 2020. Styrkurinn er 45.000 kr. á hvert barn og um 13.000 börn eiga rétt á styrknum. Sveitarfélögin annast afgreiðslu styrkumsókna eftir að búið er að kanna rétt til styrksins inni á island.is.
Styrkina er hægt er að nota til niðurgreiðslu á þátttökugjöldum vegna íþróttaiðkunar, tónlistanáms eða annarra tómstunda. Sveitarfélög setja reglur um úthlutun styrkjanna en fyrirkomulag getur verið breytilegt á milli sveitarfélaga til dæmis varðandi hvaða íþrótta- og tómstundastarf er styrkhæft, hvaða gögnum beri að skila með umsókn og afgreiðslutími umsókna.
Rannsóknir hafa sýnt að mikilvægt er að halda sem flestum börnum virkum í íþrótta- og frístundastarfi og tryggja jafnt aðgengi barna og unglinga að slíku starfi. Lögð hefur verið áhersla á að ná til sem flestra forráðamanna og hefur því verið komið af stað kynningarátaki á fjölda tungumála um íþrótta- og tómstundastyrkina.
„Covid-19 faraldurinn hefur haft gríðarleg áhrif á allt íþrótta- og tómstundastarf í landinu,” segir Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra. „Þegar þrengir að fjárhag fjölskyldna er mikil hætta á að þær dragi úr þátttöku barna í íþrótta- og tómstundastarfi og það á sérstaklega við um fjölskyldur í neðri hluta tekjudreifingarinnar. Rannsóknir sýna að íþróttir og frístundir hafa forvarnargildi og því er gríðarlega mikilvægt að við gerum allt sem við getum til að koma í veg fyrir brottfall hjá krökkum í íþróttum og tómstundum vegna faraldursins.”
Frekari upplýsingar má finna á https://www.isafjordur.is/is/stjornsysla/frettir-og-utgafa/frettasafn/opnad-fyrir-umsoknir-a-serstokum-ithrotta-og-tomstundastyrk-vegna-ahrifa-af-covid-19?fbclid=IwAR3sKvf4tSLGAUlK-_BgXu5jgmcsOHZPbHD0rP2gVBreIax1TVq5mK8Qy6E
Nánar
- 20.11.20
- Heiðar Birnir Torleifsson
Íþróttaskóli HSV hefst á Flateyri 24. nóvember
Íþróttaskóli HSV fyrir börn í 1.-7. bekk hefst á Flateyri 24. nóvember nk.
Um er að ræða grunnþjálfun og er þjálfari Hrefna Ásgeirsdóttir.
Æfingáætlun er eftirfarandi:
Þriðjudagar og fimmtudagar
1.-7. bekkur kl. 13.20-14.20
Allar æfingar fara fram í íþróttahúsinu á Flateyri.
Hlökkum til að sjá sem flesta iðkendur í íþróttaskólanum á Flateyri.
Nánar
- 18.11.20
- Heiðar Birnir Torleifsson
Íþróttaskóli HSV hefst á Suðureyri 23. nóvember
Íþróttaskóli HSV fyrir börn í 1.-7. bekk hefst á Suðureyri 23. nóvember nk.
Um er að ræða grunnþjálfun og er þjálfari Hrefna Ásgeirsdóttir.
Æfingáætlun er eftirfarandi:
Mánudagar og Miðvikudagar
1.-4. bekkur kl. 13.40-14.20
5.-7. bekkur kl. 14.30-15.10
Allar æfingar fara fram í íþróttahúsinu á Suðureyri.
Hlökkum til að sjá sem flesta iðkendur í íþróttaskólanum á Suðureyri.
Nánar