- 26.10.18
- Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir
Íbúafundur á Ísafirði um endurskoðun íþrótta- og tómstundastefnu
Þriðjudaginn 30. október fer fram endurskoðun á gildandi stefnu Ísafjarðarbæjar um íþrótta- og tómstundamál. Fundurinn verður á 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði hefst kl. 17:00 og er áætlað að honum ljúki um kl. 19:00.
Gert er ráð fyrir hópavinnu með hópstjórum sem stýra munu vinnu hópanna.
Fundurinn er öllum opinn en sérstaklega eru boðaðir einstaklingar, stofnanir og félagasamtök sem eiga hagsmuna að gæta eða búa yfir þekkingu á íþrótta- og tómstundamálum. Mikilvægt er að ná til sem flestra íbúa í þessari vinnu svo stefnan endurspegli þær skoðanir sem eru í sveitarfélaginu.
HSV hvetur forsvarsmenn aðildarfélaga sinna og aðra áhugamenn um íþróttastarf í bænum að mæta á fundinn.
Nánar
- 20.10.18
- Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir
Sambandsráðsfundur UMFÍ á Ísafirði
Sambandsráðsfundur UMFÍ var haldinn á Ísafirði laugardaginn 20. október. Fulltrúar héraðssambanda allsstaðar af landinu mættu til fundarins. Ingi Björn Guðnason bauð fundargesti velkomna til Ísafjarðar fyrir hönd stjórnar HSV. Síðan tók við hefðbundin fundardagskrá og nefndarstörf.
Nánar
- 19.10.18
- Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir
Heilsueflandi samfélag í Ísafjarðarbæ
Í dag var skrifað undir samkomulag um að Ísafjarðarbær verði heilsueflandi samfélag. Undirritunin fór fram út í Krók og var nýji göngustígurinn frá Króknum niður í Norðurtanga formlega vígður á sama tíma. Það voru félagar úr íþróttafélaginu Kubba ásamt börnum af Tanga sem klipptu á borða og gengu saman eftir stígnum.
Nánar
- 15.10.18
- Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir
Íbúafundir vegna endurskoðunar íþrótta- og tómstundastenfu Ísafjarðarbæjar
Íbúafundir vegna endurskoðunar íþrótta- og tómstundastefnu Ísafjarðarbæjar verða haldnir á þremur stöðum klukkan 17 á morgun, þriðjudaginn 16. október. Fundirnir verða í Grunnskólanum á Suðureyri, Grunnskóla Önundarfjarðar og Grunnskólanum á Þingeyri. Gera má ráð fyrir að fundirnir standi í um tvær klukkustundir og eru áhugasamir á öllum aldri boðnir hjartanlega velkomnir til skrafs og ráðagerða.
Sambærilegur fundur verður síðan haldinn á 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði þriðjudaginn 30. október klukkan 17.
núverandi stefnu má nálgast hér:
https://www.isafjordur.is/static/files/UtgefidEfni/Stefnur/ithrotta-_og_tomstundastefna.pdf
HSV hvetur fólk til að mæta og taka þátt í mótun stefnunnar.
Nánar
- 11.09.18
- Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir
Afreksform HSV byrjar 17. september
Afreksform HSV 2018-2019
Fyrir iðkendur aðildarfélaga HSV fædd 2006-2003.
Staðsetning: Sjúkraþjálfunar Vestfjarða
Þjálfarar: Tómas Emil Guðmundsson og Atli Þór Jakobsson sjúkraþjálfarar.
Tímasetning: Mánudagar og fimmtudagar 14:50 – 15:50, frá 17. september til 20. desember. Frístundarúta fer frá Bolungarvík kl. 14.30 og aftur frá Torfnesi kl. 16.00.
Verð: Haustönn kr. 8.000
Markmið: Er fyrst og fremst að stýra betur álagi hjá ungum íþróttaiðkendum og lækka meiðslatíðni. Ennfremur að auka gæði þjálfunar hjá þessum aldurshóp og minnka brottfall unglinga með markvissari og fjölbreyttari þjálfun.
Fyrirkomulag
Í tímunum er boðið upp á fjölbreyttar æfingar sem miða að því að bæta snerpu, sprengikraft, úthald, liðleika og styrk iðkendanna undir stjórn sjúkraþjálfara. Þjálfarar munu einnig skima hópinn til að finna út styrkleika og veikleika hvers og eins og hjálpa krökkunum að vinna sérstaklega með þá þætti.
Iðkendur fá fræðslu um hvernig og hversu mikið sé rétt að æfa miðað við aldur og líkamsburði og mikil áhersla er lögð á að iðkendurnir læri að gera æfingarnar rétt. Þar með minnka líkur á einkennum ofálags á þeim aldri þegar krakkarnir eru að taka út mestan vöxt.
Þarna koma saman ungir iðkendur ólíkra íþróttagreina. Þannig næst betri yfirsýn yfir æfingaálag auk þess sem þátttaka þvert á íþróttagreinar styrkja félagslega þáttinn í íþróttiðkun hjá fámennum félögum í litlu samfélagi.
Skráning
Til að taka þátt þarf að skrá sig í skráningarkerfinu á heimasíðu HSV. Þetta er sama kerfi og notað er fyrir íþróttaskólann. Farið er inn á www.hsv.is og þar valið; skráning iðkenda.
Verð er kr. 8.000 fyrir önnina og er hægt að skipta greiðslu í tvennt.
Ekki er hægt að taka þátt í þessum æfingum ef börnin hafa ekki verið skráð á námskeiðið. Opið er fyrir skráningar til miðvikudagsins 26. september.
Nánar