Nú ætlum við að reyna aftur með fyrirlestra Pálmars Ragnarssonar í næstu viku. Eins og fram kom í janúar er Pálmar mjög vinsæll fyrirlesari og vonumst við til að vel verði mætt hér vestra. Vinsamlegast komið þessari tilkynningu sem víðast.

Fyrirlestrarnir verða í sal Menntaskólans á Ísafirði.

 

Dagskráin lítur þá svona út:

Þriðjudaginn 20. febrúar kl. 18-19 fyrirlestur fyrir þjálfara og stjórnarfólk.

Þriðjudaginn 20. febrúar kl. 20-21 fyrirlestur fyrir foreldra.

Miðvikudaginn 21. febrúar kl. 18-19 fyrirlestur fyrir iðkendur 14 ára og eldri.

 

Pálmar er mjög vinsæll fyrirlesari og hefur sérhæft sig í fyrirlestrum um jákvæð samskipti í starfi með börnum fyrir kennara, þjálfara og annað starfsfólk sem starfar með börnum. Einnig er hann með fyrirlestra fyrir nemendur mennta- og grunnskóla og iðkendur í íþróttum um samskipti innan hópsins, markmiðasetningu og fleira.
Í fyrirlestrunum fjallar hann um aðferðir og eigin reynslu í þjálfun barna og unglinga. Lögð er áherslu á að láta öllum líða eins og þeir séu mikilvægur hluti af hópnum, hvernig við getum haft hvetjandi áhrif á fólkið í kringum okkur og hvernig tekið er á móti nýju fólki.
Einnig fer hann yfir það hvernig nýta má markmiðasetningu bæði í persónulegu lífi og starfi. Hvernig markmið best sé að setja sér og hvað getur hjálpað okkur við að ná markmiðum okkar.
Skemmtilegir og jákvæðir fyrirlestrar sem hafa fengið mikið umtal og skilja gott eftir sig.

 

 

Pálmar er strandamaður, fæddur árið 1984. Búsettur í Reykjavík og starfar sem körfuboltaþjálfari ásamt háskólanámi. Hann er með BS. gráðu í sálfræði og MS. gráðu í viðskiptafræði. Í lokaverkefni sínu rannsakaði hann og skrifaði um samskipti á vinnustöðum og það hvort að vinnustaðir gætu nýtt sér aðferðir í samskiptum úr íþróttum ungmenna.

Hann hefur 12 ára reynslu af íþróttaþjálfun barna og unglinga:
2006-2012: Fjölnir
2012-2017: KR
2017+ Valur

Hann hefur nokkra reynslu af stjórnunarstörfum í vinnu og félagsstörfum. Var formaður Animu - félags sálfræðinema.

Pálmar hefur komið mikið að verkefni ÍSÍ og UMFÍ „Sýnum karakter“ og hér má finna fyrirlestra sem hann hefur haldið í tengslum við það verkefni.

 

http://synumkarakter.is/grein/ahugahvot-og-sjalfstraust

 

http://synumkarakter.is/grein/eg-akvad-ad-verda-godur-thjalfari

 

Nánar
Pálmar Ragnarsson
Pálmar Ragnarsson
Því miður verður að fresta fyrirlestrum Pálmars Ragnarssonar sem áttu að vera í dag og á morgun vegna veðurs og ófærðar.
 
Stefnt er að því að hann komi í staðinn 20. og 21. febrúar og verða tímasetningar og staðsetning sú sama:
Þriðjudaginn 20. febrúar kl. 18-19 fyrirlestur fyrir þjálfara og stjórnarfólk.
Þriðjudaginn 20. febrúar kl. 20-21 fyrirlestur fyrir foreldra.
Miðvikudaginn 21. febrúar kl. 18-19 fyrirlestur fyrir iðkendur 14 ára og eldri.
Fyrirlestrarnir verða í sal Menntaskólans á Ísafirði.
 
Vinsamlegast komið þessum skilaboðum til ykkar fólks.
Nánar
Albert Jónsson SFÍ, íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2017 á fullri ferð í brautinni.
Albert Jónsson SFÍ, íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2017 á fullri ferð í brautinni.
1 af 3

Sunnudaginn 21. janúar var útnefndur Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2017, efnilegasti íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2017 ásamt því að veitt voru sérstök hvatningarverðlaun fyrir gott og gjöfult starf til íþróttamála í sveitarfélaginu.

Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2017 er Albert Jónsson Skíðafélagi Ísfirðinga. Albert er afburða íþróttamaður sem leggur mikið á sig fyrir íþrótt sína og uppsker í samræmi við það.  Í skíðasamfélaginu er hann orðlagður fyrir einstaka samviskusemi og dugnað við æfingar. Hann setur sér háleit og krefjandi markmið og vinnur skipulega að því að ná þeim. Þessi eljusemi hefur nú skilað honum sæti í A-landsliði Íslands í skíðagöngu og á möguleika á að keppa fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum í febrúar.  Áhugi Alberts og æfingagleði  smitar út frá sér og bætir alla í kringum hann. Hann er óþreytandi við að aðstoða og hvetja áfram liðsfélaga sína í Skíðafélagi Ísfirðinga og reyndar skíðagöngufólk um allt land.

Þeir íþróttamenn sem tilnefndir voru til íþróttamanns Ísafjarðarbæjar 2017 auk Alberts eru eftirfarandi:

Auður Líf Benediktsdóttir Blakdeild Vestra

Axel Sveinsson Knattspyrnudeild Harðar

Daði Freyr Arnarsson Knattspyrnudeild Vestra

Daníel Wale Adeleye Handknattleiksdeild Harðar

Einar Torfi Torfason Glímudeild Harðar

 Kristín Þorsteinsdóttir Íþróttafélagið Ívar

Leifur Bremnes Skotíþróttafélag Ísafjarðarbæjar

Nebosja Knezevic Körfuknattleiksdeild Vestra

Stefán Óli Magnússon Golfklúbbi Ísafjarðar

 

Efnilegasti íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2017 var útnefndur Þórður Gunnar Hafþórsson knattspyrnumaður hjá Vestra. Þórður er duglegur og hæfileikaríkur leikmaður sem átti fast sæti í meistarflokksliði Vestra í sumar aðeins 15 ára gamall. Hann var valinn í  úrtakshóp fyrir U17 ára landslið og síðar í lokahóp U17 ára landsliðs Íslands. Þórður fór á árinu með U17 ára landsliðinu á Norðurlandamót þar sem hann spilaði sína fyrstu landsleiki og síðar í undankeppni EM þar sem hann spilaði einnig landsleiki. Í desember var hann enn valinn í U17 ára hópinn. Ótrúlegur árangur þar sem samkeppnin er gríðarlega mikil. Þórður frá frábær fyrirmynd yngri iðkenda í leik og starfi.

Þeir íþróttamenn sem voru tilnefndir til efnilegasta íþróttamanns Ísafjarðarbæjar auk Þórðar eru eftirfarandi:

Arnar Rafnsson Handknattleiksdeild Harðar

Ásgeir Óli Kristjánsson Golfklúbbi Ísafjarðar

Birkir Eydal Knattspyrnudeild Harðar

Dagur Benediktsson Skíðafélag Ísfirðinga

Hafsteinn Már Sigurðsson Blakdeild Vestra

Hilmir Hallgrímsson Körfuknattleiksdeild Vestra

 

Hörpu Grímsdóttur voru afhent Hvatningarverðlaun fyrir gott og öflugt starf í þágu Blakdeildar Vestra og áður Blakfélaginu Skelli. Harpa hefur sinnt blakstarfinu af lífi og sál síðan hún flutti til Ísafjarðar fyrir 13 árum. Á þeim tíma hefur starfsemi félagsins vaxið og dafnað frá því að vera með tvö kvennalið í öldungarblaki í að vera með öflugt barna- og unglingastarf, lið í meistaraflokki bæði karla og kvenna í 1. deild Íslandsmóts ásamt heldri iðkendum í öldungablaki. Á síðustu árum hafa yngri flokkar félagsins unnið nokkra Íslandsmeistaratitla í sínum aldursflokkum og á síðasta ári varð meistaraflokkur karla deildarmeistarar í 1. deild og komust í undanúrslit í bikarkeppninni. Harpa komið að starfinu frá flestum hliðum, hefur meðal annars þjálfað ef ekki hefur fengist þjálfari. Er einnig mjög öflugur leikmaður og hefur endurtekið verið kjörinn besti leikmaður meistaraflokks kvenna. Harpa er nú formaður blakdeildar Vestra.

 

Ísafjarðarbær bauð til hófs þar sem útnefningar voru tilkynntar og viðurkenningar afhentar. Rúmlega 90 manns mættu og nutu glæsilegra kaffiveitinga í boði bæjarins.

Nánar
Stelpur úr 3. og 4. bekk í íþróttaskóla HSV á nýju gólfi!
Stelpur úr 3. og 4. bekk í íþróttaskóla HSV á nýju gólfi!

Í morgun kl. 11 var fysta æfing á nýju gólfi íþróttahússins á Torfnesi. Það voru hressar stelpur í 3. og 4. bekk íþróttaskóla HSV sem fóru á handboltaæfingu undir stjórn Óskars Jóns Guðmundssonar. Stelpurnar léku á alls oddi og voru hæstánægðra með nýja gólfið og ekki minnkaði gleðin þegar starfsfólk hússins prófaði nýja hljóðkerfið sem einnig var sett upp í húsinu og tónslist ómaði um salinn.

Framundan er annasöm helgi í húsinu með fjórum blakleikjum og tveimur körfuboltaleikjum:

Laugardagur 20. janúar

Kl. 13.30 blak 1. deild kk Vestri – HKb
Kl. 15.30 blak 1. deild kvk Vestri - HKb
Kl. 18.00 karfa 1. deild kk Vestri – ÍA

Sunnudagur 21. janúar
Kl. 9.30 blak 2. flokkur Vestri - HK
Kl. 11.30 blak 2. flokkur Vestri - HK
Kl. 14.00 karfa 1. deild kk Vestri – ÍA

Nánar